148. löggjafarþing — 58. fundur,  2. maí 2018.

eftirlitshlutverk þingsins.

[15:49]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M):

Virðulegur forseti. Ég er kominn hingað upp til að taka undir með hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur. Ég held að full ástæða sé til að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fái skýr skilaboð frá þinginu um að skoða hvort hæstv. félags- og jafnréttismálaráðherra hafi farið á svig við eða brotið þingsköp og þar af leiðandi ekki sinnt upplýsinga- og frumkvæðisskyldu sinni. Ég held að það sé mjög mikilvægt að það verði gert og að nefndin njóti ótvíræðs stuðnings frá forseta til að fara í slíka rannsókn. Það er mjög mikilvægt að við eyðum allri óvissu um þau mál.

Ég vil líka nota tækifærið fyrst ég er hér til að taka undir að ég tel að formaður velferðarnefndar hafi sinnt þessu máli alveg með prýði. Ég held að við eigum að þakka fyrir að málið var tekið upp og reynt að varpa ljósi á það. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)