eftirlitshlutverk þingsins.
Herra forseti. Ég tek undir með hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur og þeim öðrum þingmönnum sem hafa einmitt bent á það að hlutverk stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar er að hafa eftirlit með hæstv. ráðherrum og framkvæmdarvaldinu. Mér finnst ósköp eðlilegt að þingið standi fyrir því að nefnd á þess vegum rannsaki og skoði það sem fram hefur farið núna undanfarið, samskipti hæstv. félags- og jafnréttismálaráðherra við velferðarnefnd. Mér finnst alveg augljóst að það þarf einnig að skoða hvort góðri stjórnsýslu hafi verið beitt í öllu þessu máli. Ég er ekki alveg sannfærð um að sú skoðun sem hæstv. forsætisráðherra er að fara að setja í gang taki á því máli, þannig að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd væri sú nefnd þingsins sem ætti að skoða þetta.