148. löggjafarþing — 58. fundur,  2. maí 2018.

eftirlitshlutverk þingsins.

[15:53]
Horfa

félags- og jafnréttismálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegur forseti. Ég vil aðeins blanda mér inn í þessa umræðu hér og segja: Þegar þetta mál kom upp upphaflega og barst í tal hér í þinginu hafði ég þegar óskað eftir því að fá að hitta velferðarnefnd til þess að fara yfir málið í heild sinni. Sá fundur var síðan boðaður 28. febrúar. Á þeim fundi fóru fram góðar umræður. Á þeim fundi talaði ég líka um að þetta væru barnaverndarmál sem væru viðkvæmasti málaflokkurinn, en það væri ekkert mál að fara ofan í málið í heild sinni, halda um það sérstaka trúnaðarfundi til þess að fara ofan í þau mál. Ég hvatti nefndina til þess að gera slíkt og setja sig inn í málið frá öllum hlíðum. Næst heyrði ég frá velferðarnefnd mánuði seinna þegar ítarleg beiðni kom um gögn. Við því var orðið og öll gögn sem tengjast þessu máli voru síðan send velferðarnefnd. Ég hef því, að mínu mati, átt gott samstarf við velferðarnefnd í þessu máli og vonast til þess að eiga það áfram, hvort sem er í þessu máli eða öðrum málum sem eru þar til vinnslu.