148. löggjafarþing — 58. fundur,  2. maí 2018.

eftirlitshlutverk þingsins.

[15:58]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Ég fagna því einnig ef hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd tekur að sér þetta mál. Mig langar til að koma því á framfæri að það hefði verið mjög einfalt fyrir hæstv. ráðherra, þegar hann mætti á fund velferðarnefndar 28. febrúar, og við báðum um að fá að vita hvaða upplýsingar eða gögn lægju að baki þessari formlegu niðurstöðu sem var tilkynnt á vef ráðuneytisins og opinberuð, að segja bara: Við komumst að þeirri niðurstöðu að Bragi fór út fyrir starfssvið sitt og við beindum tilmælum til hans. Það er enginn trúnaður sem á að ríkja um það, það voru niðurstöðurnar og það hefur komið fram í fréttum þannig að ég er ekki að brjóta neinn trúnað hér. Þetta er í raun og veru það sem hefði þurft að koma fram þegar við báðum um þær upplýsingar. Og þær komu ekki og þess vegna styð ég það að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd taki þetta mál upp því að það er mjög mikilvægt upp á traustið að geta treyst að ráðherra komi fram með þær mikilvægu upplýsingar sem varða málið sem við vorum að skoða í nefndinni.