148. löggjafarþing — 58. fundur,  2. maí 2018.

eftirlitshlutverk þingsins.

[16:00]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Það verður að segjast eins og er að þetta er afar athyglisverð umræða sem á sér stað í þinginu. Ég verð að taka undir að það er auðvitað hlutverk stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar að hafa frumkvæði að því að kanna ákvarðanir einstakra ráðherra og verklag þeirra. Hvað varðar trúnaðarupplýsingar, sem hv. þingmenn í velferðarnefnd hafa nú fengið, held ég að rétt sé að taka fram hér úr ræðustól þingsins að það er engin sérstök ástæða til þess að hv. nefndarmenn í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fái aðgang að þeim upplýsingum enda snýst þetta alls ekkert um þetta einstaka mál í Hafnarfirði eða hvað þar var á ferðinni eða hvort þar hafi verið einhvers konar umgengnistálmanir eða annað. Það kemur bara málinu hreint ekkert við.

Hér erum við að fjalla um embættisfærslur forstjóra opinberrar stofnunar og samskipti forstjórans við ráðherra og hvernig ráðherra tók á því. Það er það sem málið snýst um en ekki það hvað tiltekin fjölskylda í sveitarfélagi á Íslandi hefur þurft að þola.