eftirlitshlutverk þingsins.
Virðulegi forseti. Þetta mál sem varðar barnaverndarnefnd og Braga er slæmt mál. Ég segi fyrir mitt leyti að ég vil taka undir það sem síðasti ræðumaður sagði, þessi gögn eru í sérstöku herbergi hjá velferðarnefnd, ég hef ekki kynnt mér þau, ég er búsettur í Hafnarfirði og mér er illa við að fara inn í barnaverndarmál sem mér finnst ekki að ég eigi á nokkurn hátt að koma nálægt sem þingmaður. Mér finnst að eðlilegast hefði verið að láta ekki yfir 1.000 blaðsíður með trúnaðargögnum fyrir okkur heldur eingöngu taka út þau gögn sem við máttum sjá. Það átti að gera strax. Þetta er búið að vinda upp á sig, þetta er orðið fáránlegt mál og ég skil ekki svona vinnubrögð. Af hverju voru ekki einfaldlega tekin út þau gögn sem máttu koma fram strax?