148. löggjafarþing — 58. fundur,  2. maí 2018.

eftirlitshlutverk þingsins.

[16:02]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Það er engum blöðum um það að fletta að margt í okkar störfum byggir á trúnaði og trausti. Mörg þau mál sem við fjöllum um þarf að fjalla um með viðeigandi hætti, þau eru misviðkvæm.

Ef hv. þingmönnum finnst ástæða til að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd skoði þetta mál og starfsýslu þess eitthvað nánar tek ég undir það með hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni að það er auðvitað hinn rétti farvegur. Ég tel þá líka fulla ástæðu til þess að í leiðinni sé skoðaður sá trúnaðarbrestur sem hefur orðið t.d. með birtingu þessara upplýsinga í fjölmiðlum og tölvupóstar á milli þingmanna sem rata í fjölmiðla. Ég lýsi því yfir að ég er tilbúinn til þess að sá sem forseti kýs að tilnefna megi fara í mitt pósthólf og skoða allar þær sendingar sem ég hef sent út og ég skora á aðra þingmenn að gera það sama. Það er algjörlega óviðunandi að við búum við það vantraust (Forseti hringir.) sem er að myndast hér innan þingsins.