148. löggjafarþing — 58. fundur,  2. maí 2018.

eftirlitshlutverk þingsins.

[16:03]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að nefna vegna orða hv. 9. þm. Suðurkjördæmis, Vilhjálms Árnasonar, að það er algjörlega eðlilegt samkvæmt þingsköpum að velferðarnefnd taki þetta mál til umfjöllunar. Samkvæmt 26. gr. og 49. gr. þingskapalaga, er ekkert athugavert við það. En að sama skapi er heldur ekkert athugunarvert við að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fjalli um samskipti ráðherra við þingið þegar í ljós kemur að ráðherrann hefur ekki veitt viðunandi upplýsingar í þessari pontu, eða alla vega ekki á þeim vettvangi þar sem hann hefur tjáð sig um málið, að mati þeirra sem taka eftir og vissulega að mínu mati.

Hvað varðar þau gögn sem liggja í hinu svokallaða leyniherbergi eru þar líka gögn, að sögn þeirra sem fjallað hafa um þau hér, í fjölmiðlum og hvaðeina, sem varða ekki trúnað. Þau ber að birta. Ég ætla fyrir fram að hafna öllum tilraunum til þess að reyna að fela hluti eins og niðurstöður eða eitthvað sem ekki varðar persónuleg málefni eins eða neins, að reyna að hindra að þau komi fram. Þau eiga að koma fram. (Gripið fram í.) Það er lykilatriði varðandi þetta mál,(Forseti hringir.) varðandi það að við getum fjallað um þennan málaflokk af einhverjum trúverðugleika og trausti, að þau verði birt. Ég vara sérstaklega (Forseti hringir.) við því að fólk taki í höndina á einhverjum sem býður að gögn eins og t.d. niðurstöðurnar,(Forseti hringir.) verði ekki birt.