eftirlitshlutverk þingsins.
Herra forseti. Ég tek undir með hv. þm. Þorgerður Katrínu Gunnarsdóttur og fleirum, það er fagnaðarefni að tilefni sé til að þetta mál verði tekið að einhverju leyti fyrir í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, en kannski betra ef fyrr hefði verið.
Hér hafa fallið orð um að ástæða sé til að efast um að ráðherra hafi fært þinginu öll þau gögn og allar þær upplýsingar sem lúta að þessu máli og þingið þurfi að hafa. Ég lýsi því hér yfir að ég hef enga ástæðu til að efast um að öll þau gögn sem eiga að vera í þessum málum og við þurfum að hafa, eru í leyniherberginu á nefndasviði og þeir þingmenn sem eiga að hafa aðgang að þessum gögnum hafi haft að þeim fullan aðgang undanfarna daga.