148. löggjafarþing — 58. fundur,  2. maí 2018.

hvítbók um fjármálakerfið.

[16:25]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F):

Hæstv. forseti. Ég þakka málshefjanda, hv. þm. Þorsteini Víglundssyni, þessa umræðu. Hvítbók á rétt á sér. Er skynsamlegt að ræða hana núna? Já, það er afar skynsamlegt. Hæstv. forsætisráðherra Katrín Jakobsdóttir fór vel yfir þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir. Einnig hefur speglast í umræðunni hið mikla eignarhald sem við höfum hér á bankakerfinu í kjölfarið á þeirri atburðarás sem átt hefur sér stað frá hruni. Er kallað eftir trausti? Já. Er kallað eftir auknu gagnsæi? Já. Erum við alltaf að leita að stöðugleika á þessum markaði sem öðrum? Já. Er þá skynsamlegt að taka saman það sem skiptir máli inn í framtíðina? Við erum að auka við regluverkið. Það er ólíku saman að jafna frá hruni, regluverkinu þá og nú.

Hv. þingmaður og málshefjandi kom hér inn á þær eiginfjárkröfur og þær kvaðir sem við höfum lagt á fjármálastofnanir, sem við tölum stundum að séu of stórar til að falla, og ábyrgð ríkisins þar á. Það skiptir allt máli. Við verðum með einhverjum hætti að horfa til markaðarins og draga saman hið mikla eignarhald sem er hér á fjármálakerfinu. Það er stefna og það er í stjórnarsáttmála.

Til þess að slík bók sem hér er boðuð skili tilætluðum árangri og umræðu sem á að grundvallast á henni og til að okkur auðnist þannig að auka skilvirkni á sama tíma og við drögum úr áhættu, er mikilvægt að þar komi fram samanburður við minni hagkerfi og nágrannalöndin, eins og komið hefur (Forseti hringir.) fram. Þá fyrst getum við tekið stóru ákvarðanirnar um það sem við þurfum að fara í.