hvítbók um fjármálakerfið.
Frú forseti. Þrátt fyrir stórkostlegan uppgang undanfarin ár má segja að fjármálakerfið sé enn að mörgu leyti laskað eftir brjálæðislegar kúvendingar til afreglunar, sem sköpuðu forsendur hrunsins. Margt vantar enn upp á að fjármálaregluverkið sé stöðugt og að gegnsæi í hagkerfinu sé gott, einnig í stjórnsýslunni, og að opinber stefna sé betri hvað varðar bæði peninga- og vaxtastefnu.
Almenningur á Íslandi er augljóslega betur staddur en fyrir áratug síðan, en það er ekki þar með sagt að aðstæður séu góðar. Það vantar að klára samræmingu við eftirhrunsregluverk Evrópusambandsins. Það vantar aukið og stöðugt framboð af öruggum sparnaðarkostum. Það vantar betri útlánastýringu á bönkum og það vantar að hvatar séu til staðar til samræmingar íslenskra fjármála við Evrópu, ekki síst í því formi að erlend fjármálafyrirtæki setji upp starfsemi hér og að samkeppni á fjármálamörkuðum verði meiri og betri.
Afnám af verðtryggingu á lánum til einstaklinga er skref sem margir hafa kallað eftir, enda ýtir slík verðtrygging, burt séð frá hagsmunum einstaklinga, mjög alvarlega undir óstöðugleika í peningamagni í umferð í þágu lánastofnana á kostnað almennings. Það er nokkuð sem við þurfum að taka á alveg óháð öllu öðru.
Fjármálastöðugleiki hefur reyndar verið mikið umræðuefni undanfarin ár, en ekki eru enn til neinir formlegir mælikvarðar á fjármálalegum stöðugleika og ekki heldur neinar mælingar á þeim stöðugleika þannig að mark sé á takandi.
Að lokum er engin umræða um fjármálakerfið á Íslandi fullkomin án þess að minnast á að peningastefna Íslands er ósjálfbær, óstöðug og óraunsæ. Gengisstöðugleiki frjáls flæðis fjármagns og sjálfstæð peningastefna eru ágætismarkmið, en það er eingöngu hægt að viðhalda tvennu af því á sama tíma. Bæði almenningur og fyrirtækin í landinu þurfa opið hagkerfi og fyrirsjáanlegt gengi þannig að við verðum að breyta (Forseti hringir.) út frá þeirri stefnu að vera með hávaxtakrónuhagkerfi.