148. löggjafarþing — 58. fundur,  2. maí 2018.

hvítbók um fjármálakerfið.

[16:41]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F):

Hæstv. forseti. Ég ítreka þakkir fyrir þessa umræðu og ætla aðeins að dvelja við þá stöðu á eignarhaldi ríkisins á fjármálafyrirtækjum sem hefur komið fram í umræðunni. Það er það mesta í Evrópu. Ég tel afar brýnt að við höldum okkur við þá stefnu að leita leiða til að draga úr eignarhaldinu. Fyrir því hefur minn flokkur talað og það gerir jafnframt hæstv. ríkisstjórn. Það er talað um að ríkissjóður verði leiðandi í a.m.k. einni kerfislega mikilvægri fjármálastofnun sem ég held að sé mjög brýnt. Þess vegna er mikilvægt að fá fram þá samantekt sem boðuð er í þeirri hvítbók sem hér er m.a. til umræðu og skynsamlegt vegna þess að á næstu árum mun fjármálaþjónusta og starfsemi viðskiptabanka taka miklu meiri breytingum en við höfum rætt hér í ljósi upptöku næsta kafla á evrópsku regluverki í greiðsluþjónustu. Það er óhjákvæmilegt. Þátttakendum á markaði mun fjölga. Samkeppnin mun harðna. Ef það eru einhver landamæri á þjónustunni og þar verður mikil nýsköpun og nýbreytni færast þau verulega til og falla að einhverju leyti. Markaðurinn opnast og þess vegna er afar mikilvægt að við tökum góðar ákvarðanir í ljósi gagnsæis, trausts á þessum markaði og skilvirkni.

Þess vegna fagna ég því að þessi hvítbók komi og þessari umræðu hér sem er hluti af því ferli sem við erum að fara að stíga inn í, þessari miklu (Forseti hringir.) breytingu á fjármálamarkaði.