148. löggjafarþing — 58. fundur,  2. maí 2018.

kalkþörungavinnsla.

288. mál
[16:59]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson):

Hæstv. forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og að setja þetta mál á dagskrá þingsins, sem ég tel brýnt. Nú þegar er til staðar nám og vinnsla á kalkþörungum í Arnarfirði, líkt og fyrirspyrjandi kom inn á, en er einnig fyrirhugað a.m.k. í Ísafjarðardjúpi og Húnaflóa. Um kalkþörunganám gilda lög um mat á umhverfisáhrifum sem fara þarf fram áður en starfsleyfi er gefið út. Fyrirhugað kalkþörunganám í Ísafjarðardjúpi er nú í málsmeðferð hjá Skipulagsstofnun og leita þarf m.a. til fjölmargra stofnana og haghafa áður en hugsanlegt starfsleyfi er gefið út.

Ekki hefur verið til skoðunar í ráðuneytinu að endurmeta kalkþörunganám við Ísland í heild út frá mati á verndarþörf þörungsins í OSPAR-samningnum. Kalkþörunganám á að fara fram með sömu formerkjum og fiskveiðar og önnur nýting auðlinda hafsins, tryggja þarf vernd tegundarinnar og lífríkisins og sjálfbæra nýtingu auðlindarinnar.

Kalkþörungasvæði eru skilgreind sem búsvæði sem almennt er talið að séu hnignandi eða í hættu, eins og fram kemur í skýrslu OSPAR frá 2010, sem fjallar um búsvæði á válista. Í sérstökum tillögum um verndun búsvæðisins á OSPAR-svæðinu sem gerðar voru árið 2013, er OSPAR-svæði I, sem Ísland tilheyrir, ekki talið þurfa sérstaka verndun enda hefur kalkþörunganám ekki verið umfangsmikið hingað til.

Tillögur að verndun búsvæðisins eiga því aðeins við um OSPAR-svæði III, við Írland og vestanvert Bretland. Á því svæði á vinnsla kalkþörunga sér langa sögu. Það eru því ekki bein tilmæli af hálfu OSPAR-samningsins að gæta sérstaklega að verndun kalkþörunga við Ísland, en staða mála við Bretlandseyjar gefur þó tilefni til að kynna sér betur sögu og stöðu mála þar, einmitt vegna þess að nú er fyrirhuguð kalkþörungavinnsla á nýjum svæðum við Ísland, eins og fyrirspyrjandi bendir réttilega á.

Ég þekki ekki til þess að mótvægisaðgerðum gegn kalkþörunganámi hafi verið beitt í Arnarfirði, sem er eini staðurinn þar sem vinnsla hérlendis fer nú fram. Í matsskýrslu vegna fyrirhugaðs kalkþörunganáms í Ísafjarðardjúpi er fjallað um mótvægisaðgerðir. Við kalkþörungavinnslu eru nokkur atriði sem efnistakan og vinnslan geta haft áhrif á. Við vinnsluna eyðileggst búsvæði þörunganna á þeim stað þar sem vinnslan fer fram, djúpar gryfjur myndast á hafsbotni, en einnig getur grugg sem fylgir efnistökunni haft áhrif á lífríki í nágrenni við efnistökustaðinn. Bent er á að mögulega sé hægt að draga úr neikvæðum áhrifum efnistökunnar með mótvægisaðgerðum Áhrif slíkra mótvægisaðgerða eru hins vegar ekki vel þekkt hér á landi og því er óvissa um árangur þeirra að mati Hafrannsóknastofnunarinnar.

Ráðherra hefur ekki metið hvort núverandi og fyrirhugað kalkþörunganám sé í samræmi við landsskipulagsstefnu og slíkt mat hefur ekki farið fram í ráðuneytinu eða stofnunum þess. Þarna er hins vegar bent á mikilsvert atriði, þ.e. að við þurfum að skoða nýtingu hafsins á breiðum grundvelli en ekki bara einstakar framkvæmdir eða stofna lífvera. Nýting hafsins og strandsvæða er nú fjölbreyttari en var fyrir fáeinum áratugum og má segja að fyrirhuguð löggjöf um haf- og strandsvæði verði mikilvægt tæki til að taka á skipulagi þessara svæða með tilliti til þeirrar margvíslegu nýtingar sem fram fer á svæðinu.

Ég treysti mér ekki hér og nú til að segja hvort stóraukið kalkþörunganám sé í samræmi við landsskipulagsstefnu og ákvæði hennar. Mér finnst hins vegar ástæða til að bregðast við ábendingum hv. þingmanns og óska eftir upplýsingum um stöðu mála varðandi tegundir og búsvæði sem teljast verndarþurfi samkvæmt OSPAR-samningnum og þá sérstaklega um búsvæði kalkþörunga. Ísland vill og á að vera framarlega í starfi sem miðar að vernd og sjálfbærri nýtingu hafsins og mikilvægt er að taka þátt í alþjóðlegum samningum um þau efni, ekki síst OSPAR-samningnum sem tekur bæði á mengun og vernd líffræðilegrar fjölbreytni.