148. löggjafarþing — 58. fundur,  2. maí 2018.

kalkþörungavinnsla.

288. mál
[17:03]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M):

Hæstv. forseti. Ég þakka málshefjanda, Ara Trausta Guðmundssyni, fyrir að taka þetta mál upp og eins ráðherra fyrir að vera til svara. Það er mikilvægt að fylgst sé með umhverfisáhrifum og veiðiþoli þessara tegunda. Ég bendi í því sambandi á að samþykkt var frumvarp á þinginu fyrir tveimur árum um nytjastofna sjávar í sambandi við þang og þara vegna verkefnis sem unnið hefur verið í Breiðafirði. Þeir sem eiga 80% í félaginu á Bíldudal hafa einmitt áhuga á að koma að því máli. Unnið hefur verið að verkefninu til þess að umhverfis- og náttúruvernd, auk sjálfbærrar nýtingar, sé höfð í fyrirrúmi. Ég fagna því að umræða um þetta mál sé á dagskrá.