148. löggjafarþing — 58. fundur,  2. maí 2018.

kalkþörungavinnsla.

288. mál
[17:05]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F):

Frú forseti. Við ræðum hér mjög athyglisvert mál. Ég þakka hv. þm. Ara Trausta Guðmundssyni fyrir að taka það upp. Það fjallar um nýtingu hafsins og þessa gerð þörunga, rauðþörunga. Dregur hv. þingmaður fram hættuna við vinnsluna og horfir til sjálfbærrar nýtingar á breiðum grunni. Ég vil jafnframt þakka hæstv. umhverfis- og auðlindaráðherra fyrir innlegg hans hér.

Ég vil þó spyrja aðeins út í hina hliðina. Mér skilst að þessir þörungar séu mjög sérstakir og mjög ríkir þegar kemur að næringarefnum og steinefnum. Athyglisverð þróun hefur átt sér stað í fæðubótarvinnslu. Hver staðan á því máli? Bara hin hliðin: Vöruþróun, nýsköpun, það innlegg í þetta mál.