kalkþörungavinnsla.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin og tveimur hv. þingmönnum fyrir innlegg þeirra. En þetta vistkerfi er sagt viðkvæmt, þ.e. rauðþörungarnir og það sem að þeim lýtur. Mér er til efs að áhrifin af námarekstrinum í Arnarfirði hafi verið könnuð mjög vandlega. Það er nú eitt verkefni.
Mótvægisaðgerðirnar sem nefndar hafa verið eru gerðar á Írlandi í mjög litlum mæli og er sjónrænt mat á áhrifum þeirra. Í raun og veru er mjög lítið eða ekkert vitað um mótvægisaðgerðir þegar námareksturinn er í verulega stórum stíl. Við höfum heldur ekki fjallað um rykmengun sem fylgir þessu og er töluverð á Bíldudal.
En aðalmálið er þetta: Sjálfbærar nytjar í þessu tilviki eru ef til vill með stóru spurningarmerki. Námarekstur — við skulum taka malarnám einhvers staðar. Það er jú þannig að það er ekki afturkræft. Mig grunar að þessi rekstur sé í stórum dráttum einfaldlega námarekstur. Það er einfaldlega verið að ná í efni sem endurnýjast í raun og veru ekki nema á mjög löngum tíma, ef það endurnýjast yfir höfuð.
Þess vegna er þetta spursmál um þolmörk, þ.e. hvort við leyfum þessa vinnslu á Íslandi upp að vissum þolmörkum. Þá er það bara eins og hver önnur slík námavinnsla og verður að lúta því að vera ekki sjálfbær en þoluð, því að það eyðist sem af er tekið.
Lokaorðin mín eru þó þessi: Kalkþörungavinnsla í takmörkuðum mæli getur gengið upp á landinu. Það er bara fyrirhuguð aukning sem ég hef mestar áhyggjur af. Að öðru leyti held ég að við þurfum að sinna þessum málum miklu betur en við höfum gert hingað til.