nám á atvinnuleysisbótum.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn. Ég þekki ekki nákvæmlega þann úrskurð sem þingmaðurinn vitnar til eða hef lesið hann, enda beinist fyrirspurnin að einstaka undanþáguákvæði sem vitnað er til. Eitt af aðalhlutverkum Atvinnuleysistryggingasjóðs er að tryggja einstaklingum sem hafa áður verið virkir á vinnumarkaði en missa starf sitt framfærslu þann tíma sem það tekur að finna nýtt starf. Almenna reglan er því sú að sá sem stundar nám teljist ekki á sama tíma tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar, en þá er um að ræða samfellt nám, verklegt eða bóklegt, innan hins almenna menntakerfis í a.m.k. sex mánuði. Rökin fyrir þessari tilhögun eru að viðkomandi telst ekki vera í virkri atvinnuleit á sama tíma og hann stundar nám. Engu að síður hefur verið talið mikilvægt að viðurkenna nám sem hluta vinnumarkaðsaðgerða í ákveðnum tilvikum. Í reglugerð frá árinu 2015 um nám og námskeið sem eru viðurkennd sem vinnumarkaðsúrræði er að finna nánari útlistun á því hvaða nám og námskeið teljist til vinnumarkaðsúrræða á grundvelli laga um vinnumarkaðsaðgerðir á meðan þeir sem misst hafa vinnuna eru í atvinnuleit. Það er því unnt að stunda nám af ýmsum toga sem hluta af vinnumarkaðsaðgerðum, en almennt er þá við það miðað að námið sé starfstengt og auki líkur á að viðkomandi verði aftur virkur á vinnumarkaði. Þykir það mikilvægt, ekki síst til að viðhalda virkni þeirra einstaklinga sem missa vinnuna, á meðan þeir eru í atvinnuleit.
Ákvæði sem vísað er til í fyrirspurninni kom inn í lögin í kjölfar efnahagsþrenginga vorið 2008 þegar atvinnuleysi jókst mjög hratt hér á landi, ekki síst meðal ungs fólks. Þótti mikilvægt að atvinnuleitendur gætu tekið eitt og eitt námskeið innan háskólanna án þess að það væri hluti af skipulögðu námi og myndi þannig leiða til missis bóta.
Ávallt var skilyrðið að um lágt námshlutfall væri að ræða þannig að námið teldist ekki lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna. Þegar um væri að ræða 20 einingar var jafnframt gert að skilyrði að námið gæti nýst atvinnuleitandanum beint við atvinnuleit að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar. Til að skoða þessi mál í samhengi var á svipuðum tíma jafnframt ráðist í átaksverkefni sem nefndist Nám er vinnandi vegur í samvinnu stjórnvalda og samtaka aðila vinnumarkaðarins. Þar voru greiddar háar fjárhæðir úr Atvinnuleysistryggingasjóði til að greiða leið ungs fólk inn í framhaldsskólana. Þeir sem voru tryggðir fengu tímabundið greiddar atvinnuleysisbætur samhliða námi sínu á framhaldsskólastigi. Þetta átaksverkefni ásamt fleiri verkefnum sem ráðist var í á þessum tíma byggðist á heimild samkvæmt 62. gr. laganna.
Þessum verkefnum er öllum lokið í ljósi batnandi stöðu á vinnumarkaði og er í dag almennt ekki heimilt að stunda lánshæft nám á háskólastigi eða nám sem leiði til stúdentsprófs á sama tíma og nýttur er réttur til atvinnuleysistrygginga. Eftir stendur þó að áfram er heimilt að stunda nám á háskólastigi að litlum hluta án þess að það hafi áhrif á rétt viðkomandi til atvinnuleysistrygginga. Hið sama gildir um framhaldsskólastigið, en í reglugerð um nám og námskeið sem fjallar um viðurkennd vinnumarkaðsúrræði er gert ráð fyrir að heimilt sé að stunda nám sem fram fer á námsbrautum í kvöldskóla og/eða fjarnámi og teljist einungis vera þriðjungur eða minna af fullu námi en geti leitt til stúdentsprófs á sama tíma og atvinnuleysisbætur eru greiddar.
Það er því ekki spurning hvers konar nám er stundað heldur hvort það teljist til vinnumarkaðsúrræða, enda ekki gert ráð fyrir að fólk í fullu námi fái greiddar atvinnuleysisbætur á sama tíma.
Ég vona að þetta svari að einhverju leyti spurningum hv. þingmanns, en segi svo að ekki hefur verið tekið nein bein afstaða til þess að gera breytingar hvað þetta varðar. Kannski gefur þessi fyrirspurn tilefni til þess að þetta verði eitthvað skoðað.