148. löggjafarþing — 58. fundur,  2. maí 2018.

nám á atvinnuleysisbótum.

532. mál
[17:18]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni þessa fyrirspurn og byrja ræðuna á að taka undir með hæstv. ráðherra, að það sé tilefni til að skoða málið. Ef maður skoðar 2. og 3. mgr. 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar frá 2006 sér maður að kjarninn í þeim er sá að námið sé 10–20 námseiningar, svokallaðar ECTS, og teljist þar af leiðandi ekki lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna. Umræðan hér og mögulegar breytingar ættu þá að gilda um og snúa að því námi sem er lánshæft. Ég þekki ekki þetta dæmi sem hv. þm. Björn Leví Gunnarsson nefndi.

Ég vil að lokum segja að átaksverkefnið Nám er vinnandi vegur er til að mynda dæmi um afar jákvætt verkefni sem gekk upp.