148. löggjafarþing — 58. fundur, 2. maí 2018.
nám á atvinnuleysisbótum.
532. mál
Virðulegur forseti. Það er kannski ekki miklu við þetta að bæta. Ég held að það sé bara jákvætt. Ef hv. þingmaður sendir mér vefslóð á þennan úrskurð og þessa frétt skal ég láta skoða þetta mál alveg sérstaklega og koma svo upplýsingum til hv. þingmanns. Ég þakka honum fyrir þá fyrirspurn sem hann bar hér upp og vonandi getum við sameiginlega leitt upplýsingarnar fram í þessu ljósi ef ég fæ upplýsingar frá hv. þingmanni hvað þetta snertir.