148. löggjafarþing — 58. fundur,  2. maí 2018.

sektareglugerð vegna umferðarlagabrota.

560. mál
[17:32]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Vilhjálmur Árnason) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin og get tekið undir margt af því sem þar kom fram, það er mjög mikilvægt að hlusta á hvað rannsóknarnefnd samgönguslysa segir og hvað kemur út úr niðurstöðum hennar um það hvar slysin verða. Þess vegna finnst mér við fyrstu yfirferð að áhersla hafi verið lögð á að bæta úr því sem vantaði en án þess að hafa heildaryfirlit yfir alvarleika brota. Eins og ég tók dæmi um áðan er dýrara að vera á nagladekkjum en að fara yfir á rauðu ljósi eða nota ekki öryggisbelti. Þetta þarf að skoða í heild með öllu kerfinu þegar umferðarlögin verða útfærð.

Ég nefndi líka áðan punktakerfið sem ég held að sé mjög gott að nota af því að það stuðlar að réttindamissi. Enginn vill missa réttindin. Þar skiptir efnahagur viðkomandi ekki máli. Það þarf að leggja mikla áherslu á að umferðaröryggisáætlun sé fullfjármögnuð þannig að lögreglan geti haft aukið sérstakt eftirlit. Það er sama hver sektarfjárhæðin er, það vill enginn vera stöðvaður af lögreglunni. Lögreglan á líka að geta verið sýnileg án þess að stöðva fólk, hún þarf bara að vera sýnileg og hafa þannig áhrif á hegðun fólks. Ég held að það sé alveg gríðarlega mikilvægt.

Þetta er samspil af fræðslu, varnaðaráhrifum og svo eftirliti og leiðbeiningum lögreglu úti í umferðinni til að fækka slysunum. Það skiptir öllu máli. Að öðru leyti þakka ég hæstv. ráðherra fyrir góða umræðu.