störf þingsins.
Herra forseti. Ég ræddi hér síðast úr þessum stól um heilsueflingu aldraðra, 65 ára og eldri. Ég ætla að ræða núna um heilsueflingu annarra miklu eldri aðila, sem eru jöklar Íslands. Þeir þekja, eins og þið vitið, 10–11% af landinu og það hefur svo komið í ljós að frá 1995 að telja, með sífellt bættum mælingum, hefur afkoma eða heilsa þessara jökla í stórum dráttum verið neikvæð alls staðar. Eitt ár sker sig aðeins úr, það er 2015, en að öðru leyti er þetta allt niður á við og rýrnunin á þessum tíma er 250 rúmkílómetrar, þ.e. 250 milljarðar rúmmetra af ís sem hafa horfið. Það er rúmlega einn Hofsjökull, bara svo þið gerið ykkur grein fyrir því.
Nú er þetta aðalvatnsforðabúr okkar þegar kemur að virkjunum og fleira. Forvarnir eða lækning er aðeins ein, þ.e. annars vegar að minnka losun kolefnisgasa eins og allir vita, og svo hitt að binda meira kolefni.
Það sama gildir í raun og veru um annað vandamál sem blasir sífellt betur við, eða eigum við að segja verr, hvernig sem á það er litið, sem er súrnun hafsins. Þar gildir það sama. Það er engin önnur lækning en sú sem ég nefndi, annars vegar að minnka losun og hins vegar að binda kolefni.
Ég ræði þetta hér vegna þess að við erum stórir leikendur í því sérkennilega tafli sem veröldin er komin í, bæði hér heima og á alþjóðavettvangi. Ég skora á okkur, eins og ég hef gert áður úr þessum ræðustól, að taka á þessu með þverpólitískum hætti.