148. löggjafarþing — 59. fundur,  3. maí 2018.

störf þingsins.

[10:40]
Horfa

Kolbeinn Óttarsson Proppé (Vg):

Virðulegur forseti. Ég hygg að ég og virðulegur forseti eigum það sameiginlegt að hafa gjarnan verið í kröfugöngum á 1. maí, virðulegur forseti kannski oftar en ég. Þar sem ég gekk eina slíka og stóð útifund núna 1. maí sl. og yljaði mér við kröfur verkalýðshreyfingarinnar varð mér hugsað til þess hvað það er sem verkalýðshreyfingin er að biðja stjórnvöld og okkur hér inni um að gera.

Verkalýðshreyfingin hefur kallað eftir félagsmálapakka, að í tengslum við kjarasamninga komi ýmsar félagslegar umbætur. Það er gott að hafa það í huga og ber að fagna því að ríkisstjórnin hefur nú þegar sýnt það í verki að hún hefur stigið skref í þeim efnum. Í febrúar gaf ríkisstjórnin út yfirlýsingu í tengslum við þá ákvörðun um framhald, hvort framlengja ætti kjarasamninga eða ekki, sem var algerlega óháð þeirri ákvörðun, þar sem sýnt var í verki að fullur einhugur er um að vinna slíkan félagsmálapakka.

Þau gleðilegu tíðindi urðu þennan 1. maí að hluti þeirra umbóta tók gildi akkúrat þann dag. Þá hækkuðu grunnbætur atvinnuleysistrygginga úr rúmum 227.000 kr. í 270.000 kr., sem er 90% af dagvinnutryggingu. Það eru fleiri áfangar fram undan í þessu: 1. júlí mun hámarksfjárhæð mánaðarlegra greiðslna úr Ábyrgðasjóði launa hækka og svo þurfum við að eiga áfram samtal og viðræður við verkalýðshreyfinguna um næstu skref í tengslum við kjarasamninga og vinna það mál saman. En úrbótunum 1. maí ber að fagna.