störf þingsins.
Virðulegi forseti. Í textanum góða segir: Gleymdu ekki þínum minnsta bróður. Í fyrradag heimsótti ég einstaklinga sem búa niðri í Laugardal í hjólhýsum, tjöldum og húsbílum. Nú á að hækka við þau kostnað fyrir að fá að vera þarna úr rétt um 40.000 kr., sem það voru í fyrrahaust; hækkuðu í maí upp í rúmar 80.000 kr. og nú á það að fara í 104.000 kr. vegna þess að það eru svo margir ferðamenn á leiðinni til landsins. Þeir þurfa að fá svæðið í Laugardal fyrir sig í sína skammtímaviðveru meðan þeir einstaklingar sem þarna búa tóku mér fagnandi með hlýju. Ég fékk vöfflur og pönnukökur og rjóma, nefnið það bara. En þetta er eina öryggið sem þau hafa, virðulegi forseti. Það á að láta þau fara burt núna. Þau eru fyrir.
Samt sem áður segir í 1. mgr. 76. gr. stjórnarskrárinnar að öllum sem þess þurfa skuli með lögum tryggður réttur til aðstoðar vegna sjúkleika, örorku, elli, atvinnuleysis, örbirgðar og hvers kyns annarra slíkra þátta. Við erum ekki að gera þetta. Við erum endalaust, við, löggjafinn sjálfur, að brjóta stjórnarskrá lýðveldisins Íslands. Við brjótum leynt og ljóst á þegnunum og lítilsvirðum þá og lokum augunum fyrir því hvað það eru margir sem eiga um sárt að binda.
Ég segi: Opnum augun og hættum að gleyma okkar minnsta bróður og okkar minnstu systur. Tökum utan um fólkið okkar og hjálpum því. Það er þess vegna sem við erum hér.