148. löggjafarþing — 59. fundur,  3. maí 2018.

störf þingsins.

[10:49]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Ég hef nokkrum sinnum áður fjallað um það sem er skammstafað GDPR eða General Data Protection Regulation og ég ætla að kalla almennu gagnaverndarreglugerðina. Hún kemur frá Evrópusambandinu og fer vitaskuld inn í EES og er eitt mesta ef ekki alstærsta framfarastökk í persónuverndarmálum síðan internetið kom til, fullyrði ég.

Ég hef haft áhyggjur af að þetta mál kæmi seint inn í þingið og að við myndum vinna það illa. Ég hef áður talað um að það sé mikilvægt fyrir hagsmunaaðila, sem eru allir í samfélaginu, að geta brugðist við og séð útfærsluatriði Íslendinga fyrir til að aðlagast almennilega. Nú eru tveir þingfundir, þ.e. þessi og tveir í viðbót, þar til við förum í svokallað frí, sem sum okkar kalla reyndar vinnufrið frá Alþingi, þar til sveitarstjórnarkosningar eiga sér stað 26. maí. Eftir það eru fjórir þingfundir fram að 1. júní. Það liggur þannig fyrir að ef þetta mál kemur ekki inn í dag og verður samþykkt á næstu tveimur þingfundum í næstu viku missum við af þessu marki sem er 25. maí nk.

Ég hef sagt áður að ég óttaðist að við myndum gera þetta hroðvirknislega, illa. Nú óttast ég bara að við gerum þetta ekki í tæka tíð. Mér sýnist það vera orðin staðan.

Svo heyri ég út undan mér að tafir í EES geri að verkum að hugsanlega höfum við frest fram til 1. júní. Gott og vel. Þá höfum við fjóra þingfundi eftir sveitarstjórnarkosningar til að koma þessu máli í gegn; máli sem er rúmlega 50 ákvæði og varðar ein mikilvægustu mannréttindi sem við erum með í þessu landi. Ef þetta er ekki klúður, (Forseti hringir.) miðað við það hve oft og lengi varað hefur verið við þessu, veit ég ekki hvað klúður er. Þetta frumvarp verður að koma inn. Við þurfum að fara að sýna þessum málaflokki tilhlýðilega virðingu.