störf þingsins.
Virðulegi forseti. Starf þingmannsins getur birst í ýmsu. Um daginn, 1. maí, átti ég þess kost að taka þátt í gjörningi sem ungir jafnaðarmenn stóðu fyrir í Austurstræti þar sem flutt var tíu tíma ræða Jóhönnu Sigurðardóttur sem haldin var hér í þessum ræðustól fyrir 20 árum. Tíu tíma ræða. Hefur maður þó heyrt meira málþóf hér á tveimur mínútum í þessum ræðustól en maður heyrði þar á tíu tímum.
Það var napurt þarna í Austurstræti og bólaði ekkert á maísólinni enn. Rétt eins og ég ímynda mér að kalt og einmanalegt hafi stundum verið fyrir Jóhönnu Sigurðardóttur að standa í sinni baráttu. En hér stóð hún fyrir 20 árum og talaði í tíu tíma um húsnæðismál og reyndi að leiða þingheimi fyrir sjónir nauðsyn þess að í boði væru félagsleg úrræði á þessum markaði. Hún talaði fyrir daufum eyrum. Félagshyggjuöflin voru þá í minni hluta hér eins og löngum þó að meiri hluti landsmanna aðhyllist raunar slík sjónarmið. Henni tókst ekki að bjarga félagslega húsnæðiskerfinu. Afleiðingarnar blasa við okkur. Fjársterkir aðilar keyptu upp húsnæði í stórum stíl eftir hrun og þeim er fullkomlega í sjálfsvald sett hvernig þeir haga leigunni, eins og dæmin sanna. Þetta er enn eitt dæmið um einkavæðingu velferðarinnar. Þak yfir höfuðið er ekki talið til sjálfsagðra mannréttinda hér á landi eins og almennt í siðmenntuðum löndum heldur er litið á leigjendur sem veiðistofn þar sem gilda ólympískar veiðar.
Virðulegi forseti. Ef á Jóhönnu Sigurðardóttur hefði verið hlustað á sínum tíma væru nú 12.000 fleiri íbúðir á félagslega markaðnum en raunin er.
Virðulegi forseti. Það skiptir máli hver stjórnar.