störf þingsins.
Herra forseti. Á fyrstu þremur mánuðum ársins komu rúmlega 480.000 ferðamenn til landsins. Það eru fleiri ferðamenn en komu allt árið 2010. Ég hef oft rætt um flugið og fjölda flugvéla og hvað er að gerast. Síðastliðinn þriðjudag birtist í Morgunblaðinu forsíðufrétt um að íslensku flugfélögin, Wow Air og Icelandair, áætla að stækka flota sína gríðarlega mikið á næstu misserum þannig að innan fárra ára verði 130–148 flugvélar á íslensku flugrekstrarleyfi. Þetta eru ótrúlegar tölur. Þetta er risaverkefni, hvernig menn ætla að takast á við umhverfisleg, samfélagsleg og efnahagsleg áhrif af slíku flugi og hvernig ferðaþjónustan ætlar að tækla þetta og við í sameiningu hér í landinu.
Ég tel að hér sé um að ræða eitt stærsta verkefni sem hefur komið í hendur Íslendinga að takast á við á undanförnum árum og áratugum. Ef þessar spár rætast og það sem því fylgir erum við að tala um gríðarleg áhrif á íslenskt samfélag að öllu leyti, og við skulum ekki gleyma samfélagslegu áhrifunum í því samhengi. Við höfum kannski meira horft á umhverfislegu áhrifin. Síðan höfum við verið að horfa á efnahagslegu áhrifin að undanförnu í gegnum ríkisfjármálaáætlun og fjárlög og slíka þætti. En samfélagslegu áhrifin eru gríðarleg.
Ég vil hvetja þingheim til að veita þessum málum athygli. Það þarf raunverulega að koma stefnumarkandi áætlun af stað sem þarf að vera með allt öðrum hætti en við höfum séð áður í landinu til að takast á við þann vöxt sem er fram undan. Það er mikilvægt að við sýnum frumkvæði í þessu stóra og mikla máli, en ekki þetta gamla góða, sem hefur alltaf verið á Íslandi, að vera alltaf að bregðast við hlutum eftir á. Þannig hefur íslenskt efnahagslíf verið og atvinnumarkaður og annað í gegnum árin. Nú þurfum við að sýna frumkvæði og takast á við málið.