störf þingsins.
Hæstv. forseti. Ég ætla að ræða hér um ríkisfjármálin og gildi og hlutverk fjármálaráðs og álitsgerðir þess.
Ef við ræðum gildi ríkisfjármála í samhengi efnahagsmála felur áætlunin í sér útfærslu fjármálastefnu og byggir þannig á henni og sem slík rammar hún inn tekjur og útgjöld fjárlaga og er til grundvallar fjárhagsáætlunum sveitarfélaga. Á þetta samhengi stefnumörkunar ríkisfjármála hefur í raun ekki reynt þar sem við höfum ekki enn komist í að loka þessari hringrás. Það skiptir máli að því leyti að umgjörðinni, þessari hringrás sem sköpuð er með lögum um opinber fjármál, er ætlað að skapa aga. Ekki bara í fjármálum hins opinbera heldur í allri stjórn efnahagsmála eins og kveðið er á um í lögum um opinber fjármál.
Nú hefur fjármálaráð gefið út sína álitsgerð á fyrirliggjandi ríkisfjármálaáætlun fyrir 2019–2023 og hefur þegar farið yfir álitið á opnum fundi með fjárlaganefnd. Þá hefur ráðið skilað áliti í hvort sinn á tilsvarandi stefnu. Ég vil segja hér að umbúnaður þessi sem ákveðinn var á sínum tíma í lögum um opinber fjármál hefur að marki sannað gildi sitt með lögbundnu hlutverki fjármálaráðs og aðkomu þess að stefnu og áætlunum stjórnvalda í ríkisfjármálum. Ábendingar sem koma fram í álitum ráðsins eru ekki einungis gagnlegar fyrir þing og þingnefndir heldur einnig fjölmiðla, stofnanir og aðra þá sem koma að efnahagsmálum og umfjöllun um þau. Mér finnst umræðan, frá því sem áður var til samanburðar, hverfast hraðar og fyrr um aðalatriði og þetta hefur að því leyti lyft henni faglega og styður við markmið um að skapa festu í ríkisfjármálum og hagstjórn.