kjör ljósmæðra.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Guðjóni Brjánssyni fyrir að vekja hér máls á kjörum ljósmæðra. Eins og fram kom hjá málshefjanda telja ljósmæður að misrétti ríki varðandi launasetningu og hafa tugir ljósmæðra sagt upp störfum á Landspítala meðan á kjaraviðræðum hefur staðið.
Ljósmæður telja að menntun þeirra sé ekki metin til launa og óska nú eftir samræmingu við aðrar háskólastéttir sem hafa jafn langt nám að baki. Málshefjandi óskar einnig eftir því að fjallað verði sérstaklega um flótta ljósmæðra úr starfi í þessari sérstöku umræðu hér.
Ég vil byrja á að taka fram að ég styð ljósmæður í baráttu sinni. Ljósmæður eru mikilvæg stétt sem hefur bætt við sig sérmenntun og reynslu sem þjóðfélagið þarf sannarlega á að halda. Það er ótækt að svo langan tíma hafi tekið að semja við ljósmæður sem raun ber vitni og áhyggjuefni að ljósmæður á Landspítala segi upp störfum.
Hv. málshefjandi spurði sérstaklega um nokkra þætti sem tengjast kjörum ljósmæðra. Í fyrsta lagi var spurt hver raunveruleg staða samningaviðræðna væri. Því er til að svara að ég hef ekki beina aðkomu að þessum viðræðum þar sem þær heyra undir fjármála- og efnahagsráðuneytið en hef þó beitt kröftum mínum til að lausn náist í málinu. Á föstudaginn var beitti ég mér til að samningar mættu nást við sjálfstætt starfandi ljósmæður í heimaþjónustu. Það tókst, en þeir samningar heyra undir valdsvið heilbrigðisráðuneytisins. Ég mun áfram beita mér eins og ég get, ég mun beita mér í gegnum Landspítala – háskólasjúkrahús, í gegnum fjármálaráðherra og forsætisráðherra og líka með samtölum við ljósmæður.
Við héldum öll að lausn væri í sjónmáli þegar nýjar kröfur komu á borðið á þarsíðasta samningafundi. Næsti fundur verður haldinn á mánudaginn kemur, 7. maí, og þar vona ég sannarlega að samningar náist.
Hv. þingmaður spyr í öðru lagi hvaða skilaboð og umboð samninganefnd ríkisins hafi til að ná niðurstöðu í deilunni og hvort ráðherra telji deiluna ekki svo alvarlega á þessu stigi að ástæða sé til að stíga inn, eins og hann orðar það. Því er til að svara að samkvæmt mínum upplýsingum er sú nálgun að stíga inn í kjaradeiluna ekki á dagskrá, þ.e. samninganefnd ríkisins hefur fullt umboð til að semja innan marka þeirrar launastefnu sem fyrir liggur. Hins vegar er það afstaða mín að þegar hnúturinn er orðinn svo harður sem raun ber vitni þurfi að hugsa út fyrir boxið.
Hv. þingmaður spyr í þriðja lagi hvaða svigrúm ég telji til að lyfta kjörum þessarar sérstöku og mikilvægu kvennastéttar í heilbrigðisþjónustu. Því er til að svara að fyrir helgi náðust samningar, eins og hér hefur áður verið vikið að, við sjálfstætt starfandi ljósmæður sem sinna heimaþjónustu við nýbakaðar mæður. Viðurkennt var þá af minni hálfu að leggja þyrfti meira fé inn í samninginn. Sú aukna fjármögnun varð til þess að samningar náðust milli ljósmæðra og Sjúkratrygginga Íslands. Samningsaðilar urðu einnig ásáttir um ákveðnar breytingar til að styrkja umgjörð þjónustunnar án þess að umfang hennar skertist.
Það er því svo sannarlega mín skoðun að svigrúm sé til að lyfta kjörum ljósmæðra, líkt og hv. þingmaður spyr að.
Ljóst er að við glímum við mikinn mönnunarvanda í heilbrigðiskerfinu. Það á ekki aðeins við um stétt ljósmæðra. Þann vanda er áskorun að leysa. Þegar kemur að kjörum heilbrigðisstarfsfólks eru það ekki aðeins kjarasamningar sem skipta máli heldur einnig vinnuaðstæður, álag, möguleikar á framgangi í starfi o.s.frv. Hvað þann þátt varðar hef ég möguleika til að beita mér í gegnum Landspítalann og aðrar heilbrigðisstofnanir. Það hef ég gert og mun gera áfram, bæði til að lyfta kjörum ljósmæðra en einnig annarra kvennastétta í heilbrigðisþjónustu.
Í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sem nú er til meðferðar hjá Alþingi er einnig lögð áhersla á mönnun heilbrigðisstétta almennt. Þar kemur m.a. fram að lögð er áhersla á að fjölga menntuðu heilbrigðisstarfsfólki sem býr við gott starfsumhverfi og starfskjör, markvissa þverfaglega teymisvinnu, tækifæri til starfsþróunar og þátttöku í þekkingarþróun og vísindastarfi. Þessi atriði eru öll til þess fallin að koma í veg fyrir flótta heilbrigðisstarfsfólks úr starfi. Ég er fullviss um að þau skref í átt að lausn á mönnunarvanda í heilbrigðiskerfinu séu rétt.
Hvað kvennastéttir í heilbrigðisþjónustu varðar sérstaklega er ég algerlega sammála málshefjanda. Það er brýnt að bæta kjör kvennastétta og það er mér mikið gleðiefni ef smátt og smátt er hér að myndast þverpólitísk sátt um það. Ábyrgð stjórnvalda í þessum efnum er mikil en fleira þarf að sjálfsögðu að koma til. Verkalýðshreyfingin þarf að leggjast á árar með okkur sem og atvinnulífið og skapa þarf sátt um leiðréttingu á kjörum stórra kvennastétta sem halda uppi íslensku samfélagi. Atgervisflótti hefur verið viðvarandi vandamál í fjölmennum starfsstéttum í heilbrigðiskerfinu, t.d. og sérstaklega hjá hjúkrunarfræðingum.
Það er mikið áhyggjuefni að slíkur flótti sé einna helst vandamál þegar um er að ræða stórar kvennastéttir. Það er ljóst að við þurfum að bæta kjör og aðbúnað þessara stétta svo starfsumhverfið sé eftirsóknarvert. Að mínu mati þarf pólitískan vilja til að stíga skref í átt að raunverulegum kjarabótum fyrir þær kvennastéttir sem hér um ræðir. Málshefjandi þarf ekki að velkjast í vafa um að sá pólitíski vilji er til staðar hjá mér.
Við þurfum líka að líta til þess að fólk, ekki síst ungt fólk, er í auknum mæli afhuga því mikla vinnuálagi sem einkennt hefur íslenskan vinnumarkað og vill forgangsraða í þágu fjölskyldu sinnar og frítíma, sem er gott. Tæknibreytingar samtímans ættu einnig að vera til þess að draga úr vinnuálagi frekar en hitt. Stjórnvöld verða að vera vakandi fyrir þessum breytingum og styðja við stjórnendur til að opna á ný tækifæri og breytta starfshætti. Ef við gerum það ekki missum við dýrmætt heilbrigðisstarfsfólk til annarra starfa.
Að lokum vil ég segja að það er von mín að kjaradeila ljósmæðra leysist fljótt og vel. Það er ekki bara mikilvægt fyrir öryggi fæðingarþjónustu í landinu, það er einnig mikilvægt að stjórnvöld sendi þau skilaboð að störf stórra og mikilvægra kvennastétta eins og ljósmæðra séu metin að verðleikum. Þessar stéttir (Forseti hringir.) eru burðarstoð í íslensku samfélagi og eiga að vera viðurkenndar sem slíkar.