148. löggjafarþing — 59. fundur,  3. maí 2018.

kjör ljósmæðra.

[11:39]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P):

Herra forseti. Fyrir mánuði voru 20% ljósmæðra á Landspítalanum búnar að segja störfum sínum lausum. Þetta eru 30 ljósmæður af þeim 150 sem þar starfa. Við í þingflokki Pírata hittum Ljósmæðrafélag Íslands um daginn og fórum yfir stöðu mála. Meðal annars kom þar fram að langhæst hlutfall ljósmæðra er eldri konur — þetta er alveg klárlega kvennastétt — og við erum að missa þessar reynslumiklu konur út úr stéttinni, einmitt þær sem hafa tekið þær nýju og lóðsað í gegnum starfið. Þetta er staðan.

Þarf að koma á óvart að ljósmæður eru að segja upp? Spyrjið ykkur sjálf. Þær eru í háskólanámi í fjögur ár, bæta svo við sig námi og lækka í launum. Árið 2015 fóru þær í verkfall til að hækka við sig launin eins og þær eiga rétt á. Hvað gerir þá ríkisstjórnin? Hún setur lögbann á verkfallið þeirra þrátt fyrir að landlæknir hafi sagt að það væri ekki langtímalausn. Ég ætla að lesa úr bréfi landlæknis á eftir.

Hvað gerist svo? Þær fá ekki greidd laun fyrir vinnu í verkfallinu og þurfa að fara í mál til að fá þau greidd. Þá er því áfrýjað til Hæstaréttar. Hvers konar skammarleg hegðun er þetta gagnvart ljósmæðrum? Hverjir eru ábyrgir? Hérna eru tveir hv. þingmenn sem hafa rætt það í dag, þeir sem skrifuðu undir nefndarálit um að það ætti að samþykkja þetta lögbann, hv. þingmenn Vilhjálmur Árnason og Willum Þór Þórsson, nefndarálit um að það ætti að samþykkja að setja lög á verkfall ljósmæðra þegar landlæknir sagði að það skilaði ekki neinu.

Landlæknir sagði m.a., með leyfi forseta:

„… aðgerðir sem binda endi á verkfall án þess að samningar náist leysa ekki vanda heilbrigðiskerfisins þegar til lengri tíma er litið. Ef til þess kæmi þurfa stjórnvöld að gefa afdráttarlausa yfirlýsingu um að samningaviðræðum verði haldið áfram í þeim tilgangi að skapa (Forseti hringir.) viðvarandi vinnufrið innan heilbrigðiskerfisins.“

Það hefur ekki verið gert. (Forseti hringir.) Þetta er öllum ljóst. Landlæknir varaði við þessu. Við börðumst fyrir þessu og nefndum þetta ítrekað á sínum tíma. Þeir sem eru núna í forsvari þessarar ríkisstjórnar, forsætisráðherra, fjármálaráðherra (Forseti hringir.) og heilbrigðisráðherra, bera ábyrgð á þessari stöðu og þurfa að leysa þetta mál.