148. löggjafarþing — 59. fundur,  3. maí 2018.

kjör ljósmæðra.

[11:44]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Guðjóni Brjánssyni fyrir að hefja þessa umræðu og ráðherra fyrir að vera hér til svara. Það er svolítið skrýtið með ljósmæður að þær mega ekki fara í verkfall og þeim er bannað að neita yfirvinnu; miðað við vinnumarkað og annað er þetta auðvitað ekkert annað en ofbeldi.

Það er annað sem er undarlegt í þessu máli, þ.e. að ljósmæður eru að mennta sig en fá það ekki greitt. Ef við setjum laun þeirra í samhengi við það sem við fáum hér í laun sem þingmenn og hvað við erum að gera: Við erum að rembast við að fæða lög, góð lög og ólög, en þær eru að taka á móti lífi. Þær sjá til þess að ungbarnadauði á Íslandi er með því minnsta á byggðu bóli. Hvert er þakklætið? Þeim er þakkað fyrir að sérmennta sig með því að þær fá ekki laun við hæfi.

Það er annað sem við gleymum oft en það er að mjög stutt er síðan við vorum hreinlega í torfkofunum. Það er ekki langt síðan móðir mín bjó á nyrsta byggða bóli hér á landi, á Ströndum, þar sem var mikill ungbarnadauði vegna þess að ekki var hægt að ná til lækna eða ljósmæðra og fólk varð bara að bjarga sér.

Nú erum við með ljósmæður og við eigum að sýna þeim þá virðingu að þær fái laun í samræmi við menntun sína. Eins og ég segi: Ef það er hægt að borga okkur góð laun þá hljótum við að geta borgað ljósmæðrum góð laun.