upptaka samræmdrar vísitölu neysluverðs.
Virðulegi forseti. Ég held nefnilega að þarna komi hv. þingmaður að kjarna málsins. Verðtrygging er bara form af vöxtum, eins og hv. þingmaður kom inn á í ræðu sinni áðan. Hún er einfaldlega sú tegund vaxta sem tekur mið af ákveðinni vísitölu. Það er alger misskilningur ef fólk heldur að húsnæðislán hafi einungis gengið af göflunum út af verðtryggingunni í fjármálahruni Íslands. Það gerist í hrunum almennt. Því að ef mjög alvarlegt verðbólguskot verður í hagkerfinu hækka vextirnir einfaldlega upp úr öllu valdi. Þá værum við hér að reyna að afnema vexti eða lækka þá í staðinn fyrir að draga úr vægi verðtryggingar.
Eins og ég segi er þetta bara birtingarmynd undirliggjandi vanda. Hvort það er verðtrygging eða breytilegir vextir, því ræður bankinn, það munar ekki miklu. Bankarnir hefðu bara hækkað vextina upp úr öllu valdi ef þeir hefðu ekki haft verðtryggð lán í hruninu. Vextir hefðu bara farið upp úr öllu valdi. Ef sett hefði verið þak á það? Kannski hefði verið hægt að réttlæta það á þeim tíma út frá einhverjum almannahagsmunum, hugsanlega. Þá er það líka svolítið eins og að ætla að lögbinda verð á hlutum. Það veldur bara vöruskorti. Með öðrum orðum lánaþurrð.
Aftur: Það er enginn ókeypis matur hérna. Það er ekki hægt að laga undirliggjandi vandann með því að ráðast á birtingarmyndina. Verðtryggingin er bara ein birtingarmynd. Fólk getur alveg valið um hvort það borgar himinháa vexti, að öllu heldur enn þá hærri vexti, eða verðtryggingu. Það getur meira að segja valið um að hafa fasta vexti, reyndar lengst í fimm ár mér að vitandi hér á Íslandi vegna þess að bankinn er ekki reiðubúinn til að skuldbinda sig lengur en það. Fólk getur líka haft breytilega vexti og þá aðeins lægri. Það er hægt að stilla þetta hvernig sem maður vill.
En undirliggjandi vandinn er áhættan sem felst í því að gera langtímaskuldbindingar í íslenskri krónu. Sú áhætta skilar sér í hærri kostnaði á einhvern hátt. Ef neytandinn hefur val er það jákvætt að mínu mati, en á sama tíma mun aukið val spyrja enn frekar spurningarinnar um neytendavernd. Þess vegna vildi ég halda því til haga. Við þurfum líka að pæla í þeim þætti. (Forseti hringir.) Sér í lagi með hliðsjón af reynslunni.