148. löggjafarþing — 59. fundur,  3. maí 2018.

upptaka samræmdrar vísitölu neysluverðs.

135. mál
[12:39]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Hv. þingmaður nefnir undirliggjandi vanda. Við getum auðvitað velt því fyrir okkur út frá því verðstöðugleikatímabili sem verið hefur undanfarið. Við heyrum minna talað um afnám verðtryggingar þegar verðlag er stöðugt. En það mun örugglega aukast ef hlutir ókyrrast á því sviði.

Hv. þingmaður kom inn á í ræðu sinni helstu kenningar sem verið hafa uppi og rök fyrir því að verðtrygging á húsnæðislánum sé ósanngjörn og geti verið uppspretta óstöðugleika. Hún geti jafnvel leitt til hærra vaxtastigs. Þær kenningar þekkjum við. Jafnframt hefur verið bent á að verðtrygging dragi úr áhrifamætti hagstjórnartækja. Það hefur Seðlabankinn sjálfur viðurkennt. Þess vegna velti ég fyrir mér á sama tíma og ég er sammála hv. þingmanni um að öll inngrip eru slæm — nýjasta dæmið er um húsnæðismarkaðinn þar sem er hreinlega skortur — ef ríkið gripi inn í markaðinn núna væntanlega með einhverju hámarksverði myndu einhverjir sem eiga húsnæði fara í önnur viðskipti með það en að leigja út. Þá myndu einhverjir lenda á götunni sem við ætluðum upphaflega að hjálpa. Ég er sammála hv. þingmanni, það sama myndi gerast með vextina. Mér fannst hv. þingmaður gefa til kynna að lánveitendur myndu ekki treysta sér til þess að ákvarða vexti á lánum í tilboði til lántaka langt fram í tímann öðruvísi en að bjóða upp á verðtryggða samninga. Er það réttur skilningur?