148. löggjafarþing — 59. fundur,  3. maí 2018.

upptaka samræmdrar vísitölu neysluverðs.

135. mál
[12:42]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég lít nú bara á markaðinn og sé engan bjóða fasta vexti til lengri tíma en fimm ára, hvort sem það er verðtryggt eða óverðtryggt. Það er bara staðan sem ég sé. Ég get ekkert spáð fyrir um hvort einhvers staðar sé til fjárfestir sem treystir sér til að setja óverðtryggða vexti til 40 ára. En ég hygg þó að sá fjárfestir myndi hafa þá æðiháa vegna óvissuþáttarins inn í framtíðina. Kannski er einhver til í það. En ég sé þá ekki á markaðnum í dag. Ég get ekki svarað því betur en svo, því miður.

Að verðtrygging geti dregið úr mætti Seðlabankans til hagstjórnar eru kerfisleg rök sem ég er opinn fyrir og finnst alveg þess virði að tala um. Það er líka annað sem verðtryggingin gerir, sem er slæmt, hún gerir íslenskt hagkerfi skrýtið. Þegar hagkerfi eru skrýtin miðað við regluverk og viðskiptahætti annars staðar býr það til ósamræmi. Á þann hátt erum við svolítið ósamhæfð við aðra markaði. Sumir vilja meina að það sé ástæða þess að erlendir bankar hafi engan áhuga á að koma hingað, þeir skilji ekki hagkerfið okkar. Eðlilega ekki, vegna þess að það er svo skrýtið. Mér finnast það alveg ágæt rök. En þetta eru allt kerfisleg rök, ekki rök út frá neytandanum í sjálfu sér. Út frá neytandanum snýst þetta um tvennt í mínum huga, val og neytendavernd. Ekki verðtryggð lán eða óverðtryggð heldur val og neytendavernd. Hvort tveggja vil ég hafa sem mest af.

Hv. þingmaður nefndi að við heyrum minna um afnám verðtryggingar í stöðugu verðlagi. Það er akkúrat það sem ég var að reyna að koma að áðan. Þá förum við gjarnan að pæla í einhverjum aðferðum sem myndu henta neytendum núna. Akkúrat núna. En gleymum þá að pæla í hvernig það hefði hentað neytendum rétt eftir hrun og erum kannski til í aðferðir núna sem hefðu hentað mjög illa akkúrat þegar illa stóð á. Það er ein hættan við að stjórnmálamenn séu að reyna að finna einhverjar patent lausnir á undirliggjandi vandamálum með því að ráðast á einkennið.

Eins og ég segi styð ég tillöguna eins og hún liggur fyrir eftir meðferð nefndarinnar vegna þess að ég tel öll ný gögn og jafnvel betri yfirferð á gögnum sem þegar eru til og alla umræðu um þetta vera í eðli sínu af hinu góða og nauðsynlega vegna þess að við erum með mjög skrýtið hagkerfi.