148. löggjafarþing — 59. fundur,  3. maí 2018.

upptaka samræmdrar vísitölu neysluverðs.

135. mál
[12:44]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Helga Hrafni Gunnarssyni fyrir um margt athyglisverða ræðu, það sem ég heyrði af henni. Það var reyndar eitt sem ég hefði viljað fá skýringu á hjá hv. þingmanni. Hann virðist vera einn af þeim mönnum sem hlaupa í þá ódýru lausn að halda því fram að íslenska krónan sé undirrót alls óstöðugleika á Íslandi.

Það hafa mætir hagfræðingar borið til baka og hrakið, eins og t.d. dr. Ólafur Margeirsson, sem sett hefur fram mjög gagnmerkar upplýsingar um þetta mál ásamt fleirum. Af því að hv. þingmaður talaði um að ekki væri hægt að gera langtímaskuldbindingar í íslenskri krónu þá dettur mér í hug að spyrja: Hvaða gjaldmiðil sér hv. þingmaður fyrir sér að gæti hentað hér? Hugsanlega norska krónu, sem hefur lækkað um 25% á fjórum árum, eða sænska krónu sem hefur lækkað um u.þ.b. 20% á sama tíma, hugsanlega evru, sem er núna eins og korktappi og fer upp og niður?

Það er nefnilega mikill misskilningur hjá hv. þingmanni að halda að íslenska krónan sé eitthvað rosalega útsett fyrir óstöðugleika þó að sagan segi okkur það. Ég held frekar að við séum að tala um að íslensk hagstjórn sé óstöðug. Þessi tillaga og breytingin við hana er kannski vitnisburður um það þegar menn gefast upp fyrir einhverju ákveðnu vandamáli og reyna þá að setja smáplástur á stærra sár.

Auðvitað er það ekki það sem við erum að leita eftir, við erum að leita eftir lausn. Mig langaði helst að heyra frá hv. þingmanni: Hvaða gjaldmiðil sér hann henta okkur hér annan en íslenska krónu?