upptaka samræmdrar vísitölu neysluverðs.
Virðulegi forseti. Við þurfum möguleika neytandans á verðtryggingu til þess að tekjulágir einstaklingar geti fundið lánveitanda sem er reiðubúinn til þess að lána þeim til 40 ára. Það er ástæðan. (Gripið fram í: Lægri vextir?) Viðkomandi getur … (ÞorS: Lægri vextir? ) Með lægri vöxtum? Ef hægt er að hafa þá lægri þá eru það lægri vextir, en eins og ég sagði áðan trúi ég ekki þeirri tilgátu að afnám verðtryggingar lækki vexti. Kannski er hún sönn, kannski hef ég rangt fyrir mér. Ég hef bara ekki heyrt sannfærandi rök fyrir því hingað til.
Ég biðst afsökunar ef ég misskildi hv. þingmann varðandi krónuna. Ég átta mig satt best að segja ekki á því hvað hv. þingmaður á við þegar hann talar um að eitthvað sé krónunni að kenna, þau orð þýða í mínum huga það sama og að segja að krónan sé óstöðug. Ég hugsa þetta kannski ekki á sama hátt og hv. þingmaður, það má vera. En óháð spurningunni um hverju þetta sé að kenna þá tel ég ekki mögulegt að hafa hér stöðuga krónu meðfram frjálsu flæði fjármagns og sjálfstæðri peningastefnu. Ég vil líka benda á að í ræðu minni var ég ekki að segja að við ættum að losa okkur við krónuna, ég var bara að segja að á meðan við værum með hana og frjálst flæði fjármagns yrði þetta vandamál sem verðtryggingin væri eina langtímalausnin við fyrir neytendur — ekki fyrir bankakerfið, heldur fyrir neytendur, til þess að hafa efni á láninu í svo óstöðugu, áhættusömu umhverfi.
Ég er ekki að leggja til að við köstum krónunni fyrir róða. Ég er bara að útskýra afstöðu mína til verðtryggingar og þessa máls í kjölfarið út frá þeirri forsendu að við verðum áfram með íslensku krónuna, út frá þeirri forsendu að við höfum frjálst flæði fjármagns. Eitthvað af þessu þarf að víkja. Ætli það endi þá ekki með því að það verði frjálst flæði fjármagns. Það getur verið.
Ég vona að þetta svari spurningum hv. þingmanns. Það var alla vega ætlun mín að svara þeim. Ég skildi þær kannski ekki nógu vel, það getur verið. Þá biðst ég bara forláts og hlakka til næsta samtals um sama efni.