tollasamningur ESB og Íslands um landbúnaðarvörur.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. málshefjanda, Birgi Þórarinssyni, þessa umræðu og fagna því að þetta sé rætt. Ég fagna því líka að hv. samþingsmaður hans og þingflokksformaður Miðflokksins, Gunnar Bragi Sveinsson, er hér í salnum. Það eru fáir hér inni sem bera meiri ábyrgð á einmitt umræddum samningi en hv. þingmaður þegar hann var hæstv. ráðherra svo ég vitni í hann sjálfan í frétt daginn sem samningurinn var gerður, með leyfi forseta:
„Þetta er fagnaðarefni fyrir íslenska neytendur sem munu sjá þess stað í lækkuðu matvöruverði og útflytjendur sem munu vafalaust nýta sér þá möguleika sem í þessum samningum felast.“
Það var sagt um samningana þá.
Virðulegur forseti. Sama hvað hverju og einu okkar hér kann að finnast lítur alþjóðasamfélagið á tolla sem nokkurs konar verðmæti. Okkur getur fundist eitthvað um það prívat og persónulega en þannig nálgast alþjóðasamfélagið það. Mér hefur alltaf runnið það pínulítið til rifja að þáverandi stjórnvöld nálguðust þessar viðræður ekki sem viðskiptasamninga um hagsmuni, í það minnsta allt of lítið. 350.000 manna ríki samdi við 350 milljóna manna bandalag og því miður var allt of lítið gert af því að nálgast þetta sem viðræður um hagsmuni.
Ég treysti því að hæstv. utanríkisráðherra og hæstv. ríkisstjórn slái í klárinn þegar kemur að því sem lýtur að útflutningi íslenskra afurða sem er andlag þess sem flutt er hingað inn en mig langar að spyrja hæstv. ráðherra aðeins út í afstöðu hans til tillagna sem birtust í skýrslu starfshóps um tollasamninga frá 2016, sérstaklega þá um starfshóp sem greinir stöðu íslensks landbúnaðar gagnvart mögulegum breytingum í alþjóðlegu viðskiptaumhverfi. Hver er afstaða ráðherra til (Forseti hringir.) þess starfshóps? Er einhver vinna hafin við hann? Er hann kannski mögulega kominn af stað? Er ráðherra til í að upplýsa okkur um það?