tollasamningur ESB og Íslands um landbúnaðarvörur.
Virðulegi forseti. Með tollasamningnum sem gerður var við ESB, um viðskipti með landbúnaðarvörur, var markmiðið að koma á gagnkvæmum tollaívilnunum og um leið að auka útflutningstækifæri fyrir íslenska framleiðendur. Í samningnum segir að felast eigi í honum tækifæri fyrir íslenska bændur þar sem íslenskir markaðir séu takmarkaðir. Til þess að því markmiði verði náð þarf ríkið að fylgja því eftir, ekkert má gefa eftir svo að íslenskur landbúnaður búi ávallt við sanngjörn starfsskilyrði.
Hér hefur verið til umræðu sú ákvörðun sem tekin var um að hraða innleiðingu á auknum kvóta vegna innflutnings á ostum þannig að hún komi öll til framkvæmda á þessu ári; að innflutningur á ostum fari úr því að vera 20 tonn í 230 tonn strax. Bent hefur verið á að gerð hafi verið mistök í innleiðingu á því ákvæði svo að það hafi ekki verið virkjað.
Virðulegi forseti. Þegar þetta var samþykkt var því sérstaklega beint til ráðherra af atvinnuveganefnd að aðgangsheimildum á innri markað Evrópusambandsins fyrir íslenskar mjólkurafurðir yrði einnig hraðað eins og hægt væri, enda byggist þessi samningur á gagnkvæmum aðgangsheimildum. Það hefur ekki gengið eftir.
Með því að hraða innleiðingu á auknum kvóta á ostum erum við að styrkja einstefnuloka á þessum málum án þess að huga að útflutningsvörum á íslenskum mjólkurvörum samhliða. Það er algjört lágmark að sú vinna verði hafin áður en hraða eigi innflutningi á ostum, því að nú er þegar búið að opna á að það verði uppfyllt á allra næstu árum.
Hv. þm. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir talar um frjálsan og opinn markað sem sé okkur öllum til heilla, hvort sem við erum neytendur eða framleiðendur. Ef öllum markmiðum samningsins er náð þá getum við tekið undir það.
Hv. þingmaður var ráðherra landbúnaðarmála og átti því að koma því í vinnslu að koma (Forseti hringir.) á aðgangsheimildum fyrir íslenskar mjólkurvörur á Evrópumarkaði. (Forseti hringir.) Hvað er að frétta af því?