148. löggjafarþing — 59. fundur,  3. maí 2018.

tollasamningur ESB og Íslands um landbúnaðarvörur.

[14:12]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (Flf):

Virðulegi forseti. Hv. þm. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sagði í sinni ræðu sem svo að í samfélagi þjóðanna værum við ekki eyland. Ég tek undir orð hv. þingmanns að miklu leyti en vil þó minna hana á að við erum eyland. Við búum hér á eyju úti í Atlantshafi. Það að hingað verði fluttar inn hráar kjötvörur í stórum stíl stefnir heilbrigði íslensku búfjárstofnanna í hættu, en þeir hafa sökum einangrunar landsins, sem er eyland, blessunarlega verið lausir við flesta þá sjúkdóma sem bændur í Evrópu eru í eilífu stríði við með miklu magni af sýklalyfjum.

Ég vil ekki klára þessa ræðu mína án þess að nefna sérstakt áhugamál mitt sem er almannavarnir. Hvernig koma þær þessu við? Þá er ég að tala um matvælaöryggi, hversu mikilvægt það er fyrir þjóð sem býr úti í miðju Atlantshafi að hafa öfluga matvælaframleiðslu sem hefur burði til að brauðfæða þjóðina. Það er hreinræktað almannavarnamálefni að við höfum getu til að sjá um okkur sjálf hvað matvælaframleiðslu varðar að mestu leyti ef vá stefnir að.

Ég vil líka minna á að hér á Íslandi eru framleiðsluskilyrði allt önnur en í Evrópu og enginn samanburður auðveldur varðandi stærð framleiðslunnar og kostnað við öll aðföng, eins og ég benti á í fyrri ræðum minni, við að flytja þetta um langa leið hingað upp á skerið.

Bændasamtökin hafa ályktað að tollasamningi okkar við ESB frá 2015 sem tók gildi 1. maí sl. verði sagt upp.