tollasamningur ESB og Íslands um landbúnaðarvörur.
Herra forseti. Ég vil vara við þeim hræðsluáróðri sem af og til heyrist hér í þingsal þegar við tölum um landbúnaðarmál. Íslenskur landbúnaður þarf ekki á hræðsluáróðri að halda. Við erum með frábæra vöru sem stenst einmitt samkeppni, hvaðan sem hún kemur.
Ég vil vara við því en ég vil líka benda á það ótrúlega tækifæri sem felst í þessum tollasamningi fyrir íslenskar landbúnaðarvörur. Það voru gerð mistök varðandi innflutning á sérostum, sem tengist parmesan og fleiri sérsvæðum innan Evrópusambandsins. Við erum með íslenska lambakjötið og við erum ekki enn á þessum tíma búin að vinna að því að afla okkur landfræðilegrar merkingar innan Evrópusambandsins. Í þessu felast gríðarleg tækifæri fyrir íslenskt lambakjöt sem við vitum öll hér í salnum að er eitt það besta í heimi, þar eru sóknarfæri.
Það eru gríðarleg sóknarfæri fyrir mjólkurvörur, fyrir kindakjöt, fyrir svínakjöt, fyrir alifugla, fyrir ost, smjör og pylsur. Það eru ýmis tækifæri sem við eigum að nýta okkur og vera frekar kokhraust. Við eigum að sækja fram fyrir íslenskan landbúnað en vera ekki alltaf að koma upp múrum til þess að verjast. Það er að mínu mati ekki rétt. Við eigum halda áfram að styrkja íslenskan landbúnað. Við erum að gera það með búvörusamningum með hátt í 16 milljörðum á ári, óbeinum styrkjum til viðbótar, þannig að við erum með um tæpa 30 milljarða í styrk til landbúnaðar á ári. Og við viljum styrkja íslenskan landbúnað en það verður að vera á forsendum frjáls markaðar og samkeppnisreglna.
Ég segi þetta hiklaust af því við erum með góða reynslu og góð fordæmi, m.a. innan landbúnaðar. Þegar við lækkuðum tolla á grænmeti, hvað gerðu íslenskir grænmetisbændur? Þeir sóttu fram. Þeir voru með 80% markaðarins. En við aukinn innflutning, hvað gerðist? Þeir náðu aukinni hlutdeild á íslenskum markaði og fóru upp í 90%. Þetta er dæmi um það að íslenskir bændur, og við Íslendingar, geta svarað samkeppni, með öflugri þjónustu, enn betri vöru, nýbreytni og nýsköpun innan síns geira. Það eru ótal tækifæri (Forseti hringir.) fram undan fyrir íslenskan landbúnað og við eigum frekar að fagna svona framsýnum breytingum sem, merkilegt nokk, ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks (Forseti hringir.) stóð fyrir á sínum tíma. Við eigum bara að styðja það að þær breytingar komist í gegn.