upptaka samræmdrar vísitölu neysluverðs.
Virðulegi forseti. Ég fagna tækifærinu til að fá að ræða þessi mál áfram við hv. þingmann. Ég hlýddi á þorra ræðunnar, ég kom reyndar aðeins of seint inn í þingsal til að heyra hana alla, því miður. Hv. þingmaður nefndi 50 milljarða sem heimilin hefðu orðið af ef maður ber saman húsnæðislán verðtryggð út frá vísitölu neysluverðs annars vegar og vísitölu neysluverðs án húsnæðisliðar hins vegar.
Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann telji þó ekki mikilvægt að gera slíka útreikninga með hliðsjón af tímabilinu í fyrsta lagi og í öðru lagi að við tökum með inn í myndina hvaða tímabil í hagsveiflu hagkerfisins við miðum við. Ég spyr vegna þess að þótt það sé 50 milljarða kr. munur samkvæmt þingmanninum akkúrat núna var það ekki þannig eftir hrun.
Ég gerði í snatri útreikninga út frá tölum Hagstofunnar sem ég kann illa við að bera ábyrgð á þar sem ég gerði þá í nokkrum flýti en ég reyndi að vanda mig. Ég fæ ekki betur séð en að í fyrsta lagi sé vísitala án húsnæðisliðar hærri en vísitalan, þ.e. hún hækkaði meira 2008–2011. Samkvæmt mínum bráðabirgðaútreikningum er hið sama að segja um tímabilið 2008–2015. Það rímar við línurit sem kemur fram í umsögn um ágætt mál hv. þingmanns um svipað efni. Þar kemur fram í línuriti 2, sem er mjög nýlegt, að það hefði verið lántakendum í hag að reikna þetta með vísitölu án húsnæðisliðar. Hins vegar sýnist mér á þessu línuriti að það hefði verið þeim í óhag frá hruni og fram til ársins 2017.
Spurning mín er þessi: Skiptir ekki máli hvaða tímabil við tökum þegar við miðum út frá þessum vísitölum og metum hvað hentar lántakendum og borgurum? Skiptir staða okkar í hagkerfinu á hverjum tíma ekki máli þar?