148. löggjafarþing — 59. fundur,  3. maí 2018.

upptaka samræmdrar vísitölu neysluverðs.

135. mál
[14:41]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir þetta frábæra andsvar. Það er rétt að það skiptir máli á hvaða tímabil menn horfa. Þegar þingmenn Miðflokksins unnu það frumvarp sem kom fram eftir áramótin horfðum við á tímabilið frá 1989 til dagsins í dag. Í sjálfu sér var fylgni með báðum vísitölunum u.þ.b. til ársins 2004. Þá byrjaði þetta að gliðna og hefur gliðnað síðan með miklum ósköpum allt fram á daginn í dag.

Þeir 50 milljarðar sem ég minntist á í ræðu minni áðan eru einvörðungu yfir 12 mánaða tímabil. Ég féll ekki í þá freistni að taka t.d. síðustu 60 mánuði þar sem talan er gígantísk, miklu stærri og meira afgerandi en það tímabil sem ég tók. Tímabilið sem við horfðum á var, eins og ég segi, 1989–2018.

Málið sem Miðflokkurinn hefur lagt fram er að okkar dómi fyrsti þáttur í því að afleggja verðtryggingu, þ.e. að bjóða fólki upp á alvörulánakjör á Íslandi. Við erum ekki búin að tala mikið um vextina sem slíka í þessari umræðu en það er hreint með ólíkindum að við skulum bjóða fólki upp á þá þegar fólk getur í öllum nágrannalöndum tekið húsnæðislán til lengri tíma með 1,7–2,5% vöxtum, án verðtryggingar nota bene. Hagstæðustu vextir í dag eru, ef ég man rétt eða síðast þegar ég gáði, hjá lífeyrissjóðunum eitthvað um 3% plús verðtrygging sem er núna, við þær bestu aðstæður sem við erum að tala um, búin að vera undir verðbólgumarkmiðum Seðlabankans í 48 mánuði eða svo. Þetta er líka lykillinn að málinu.