148. löggjafarþing — 59. fundur,  3. maí 2018.

upptaka samræmdrar vísitölu neysluverðs.

135. mál
[14:44]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur. Þarna kaus hann hins vegar að gera það sem hann varaði við í fyrra andsvari, að taka afmarkað tímaskeið. Ef launavísitalan hefði verið tekin yfir lengra tímabil, eins og í hans tilfelli núna, hefði hann eflaust fengið aðra niðurstöðu.

Ég tel ekki út af fyrir sig að launavísitalan sé skárri vísitala til að leiðrétta laun eða lán eftir eða verðtryggja lán vegna þess einfaldlega að ég tel að Íslendingar eigi að stíga inn í nútímann og haga sér með svipuðum hætti og nágrannalöndin. Við eigum að reyna að búa þannig um hnútana að við getum átt von á því að þær þúsundir manna sem búa í nágrannaríkjunum geti hugsað sér að flytja hingað heim, geti hugsað sér að koma heim og geti þá staðið í því að kaupa íbúð. Við eigum líka að reyna að koma í veg fyrir að þeir sem þó eru hér enn flýi héðan út af þessu.