148. löggjafarþing — 59. fundur,  3. maí 2018.

upptaka samræmdrar vísitölu neysluverðs.

135. mál
[15:51]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Það ber að þakka hv. þingmanni fyrir þessa ræðu. Hann er búinn að taka af öll tvímæli um það að hann er ófáanlegur með öllu til þess svo mikið sem leiða hugann að því hvernig þetta land gæti litið út ef ekki væri hér sú skipan mála með verðtryggingu sem við þekkjum.

Herra forseti. Nauðhyggja af því tagi sem hér er lýst, metnaðarleysi af því tagi sem birtist í ræðu hv. þingmanns, hugmyndafátæktin — allt til þess að tala fyrir því að við tökum upp evruna sem er umræðuvert út af fyrir sig. En hv. þingmaður hlýtur að gera sér fulla grein fyrir því að það er ekki innan seilingar og gæti í fyrsta lagi komið til álita einhvern tímann í framtíðinni, af þeirri ástæðu að mál hafa skipast þannig á vettvangi Evrópusambandsins að þetta kæmi ekki til greina.

En að hv. þingmaður, sem er auðvitað vel kunnugur efnahags- og fjármálalífi landsmanna, skuli ekki geta fjallað um þetta með öðru en stóryrðum; saka menn um það að bera á borð einhver bellibrögð, svo að ég vitni orðrétt í hv. þingmann. Það er algerlega, leyfi ég mér að segja, undir virðingu þingmannsins að tala með þessum hætti. En hann er búinn að taka af öll tvímæli um það að Viðreisn skipar sér í flokk þeirra sem eru svörnustu andstæðingar þess að verðtryggingarokinu verði létt af þjóðinni.