148. löggjafarþing — 59. fundur,  3. maí 2018.

upptaka samræmdrar vísitölu neysluverðs.

135. mál
[15:53]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Hafi ég verið stóryrtur á það sama við um þingmanninn í andsvarinu, en ég kann bara vel að meta það. Ég er einfaldlega orðinn þreyttur á þessari umræðu. Ég er búinn að fylgjast með henni æðilengi, allan minn starfsferil, og hef ekki séð að hún leiði okkur til neins. Við erum í stöðugum hringrökum í þessu máli.

Ég er ekki aðdáandi verðtryggingar. Ég er svarinn andstæðingur hennar. Ég tel bara einu leiðina til þess að losna við hana að taka upp alþjóðlega gjaldgenga mynt. Ég segi enn og aftur: Verðtryggingin er hækja okkar til þess að ráða við kostnaðinn af myntinni af því að heimilin, fyrirtækin, ráða ekki við hið óverðtryggða vaxtastig. Þau taka í raun og veru vextina að láni.

Við vitum það og þekkjum mætavel að það væri miklu skynsamlegra, meira að segja við núverandi vaxtastig, sem er hátt, að taka óverðtryggt húsnæðislán, þar sem heildargreiðslubyrði okkar verður einfaldlega umtalsvert lægri þegar upp er staðið. En mánaðarleg greiðslubyrði framan af mun hærri. Það er það sem heimilin hafa í raun og veru valið, því miður kannski, að leita í skjól verðtryggingarinnar til þess að ráða þá frekar við kaupin á húsnæðinu, ráða við hina mánaðarlegu greiðslubyrði. Það er staðreynd máls.

Ég myndi svo gjarnan vilja vera laus við verðtryggingu með íslenskri krónu, en hún hefur einfaldlega á endanum ekki verið neitt annað en hækjan okkar til þess að þola vaxtakostnaðinn af þeirri sömu íslensku krónu, þola óstöðugleikann. Þegar gengisföllin ganga yfir okkur, þekkjum við alveg afleiðingarnar. Vaxtastigið er rifið upp úr öllu valdi til þess að reyna að ná stöðugleika á gjaldmiðlinum. Þá er eiginlega valkostur lántakandans: Vil ég deyja hægt eða hratt? Af því að það er engin leið að ráða við það vaxtastig sem slíku fylgir. Það er ágætt að minna á að stýrivextir fóru hér í 18% í síðasta gengisfalli. Það réði ekkert heimili við óverðtryggt húsnæðislán í því vaxtastigi.