upptaka samræmdrar vísitölu neysluverðs.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Eins og mig grunaði erum við, þó að við séum ekki alveg sammála með myntina sem slíka, í grunninn sammála um það mál sem við ræðum hér og verðtrygginguna. Ég vil hins vegar taka undir með hv. þingmanni varðandi myntina að út kom prýðisskýrsla 2012 frá Seðlabanka Íslands um þá möguleika sem við höfum í þessari stöðu. Ég held að við verðum bara, eins og með ríkisfjármálin, peningamálin, vinnumarkaðinn, í þessu heildarsamhengi og hagstjórn, stöðugt að vera að ræða þá möguleika og þær lausnir sem við erum með og það fyrirkomulag sem við höfum á hlutunum. Það á jafnframt við um myntina. Við eigum að sjá hverjir kostirnir eru og hver ávinningurinn. Ég get tekið undir með hv. þingmanni um það.