upptaka samræmdrar vísitölu neysluverðs.
Herra forseti. Áður en ég byrja að ræða þetta efnislega langar mig að leggja fram ákveðnar forsendur sem við ættum að miða við þegar við eigum í umræðu af þessu tagi, um eðli hagkerfis okkar og hvert eigi að fara í framtíðinni.
Í fyrsta lagi myndi ég segja að ef Ísland er að gera eitthvað ólíkt öllum öðrum löndum heims þarf mikinn rökstuðning fyrir því að breyta því ekki. Ef Ísland er að gera eitthvað eins og öll önnur lönd heims þarf mjög sterkan rökstuðning fyrir því að breyta því.
Ég er ekki að segja með þessu að við megum ekki vera öðruvísi eða að aðstæður geti ekki verið ólíkar. Þær eru það stundum og þá tökum við því. Ég er að segja að við verðum að hafa gríðarlega sterkan rökstuðning í öllum þeim tilfellum. Við verðum að átta okkur á í þessu samhengi að við erum á milli Katar og Írlands í vergri landsframleiðslu á mann. Við erum á milli Nepals og Papúa Nýju-Gíneu í vergri landsframleiðslu yfir höfuð. Við erum ekki ótrúlega ólík öllum öðrum hagkerfum heims og við erum alls ekki ólík evrópskum hagkerfum nema hvað varðar smæð okkar annars vegar og það að við erum með sjálfstæðan gjaldmiðil hins vegar. Það er mjög margt líkt með okkar hagkerfi og evrópskum hagkerfum. Við eigum að vinna svolítið út frá því.
Þetta er ástæðan fyrir því að ég vil meina að það sé algerlega fráleitt að nota ekki nákvæmlega sömu mæliaðferð fyrir verðbólgu og allir aðrir. Það er algerlega fráleitt. Ekki bara vegna þess að það gefur til kynna að allir aðrir séu að gera eitthvað rangt eða við séum að gera eitthvað rangt, líklega þó það síðara, heldur gerir þetta líka að verkum að við höfum enga leið til að bera okkur saman við alla hina. Það ætti í rauninni að vera nóg. Það ætti ekki að þurfa neina frekari umræðu. Það er fáránlegt að gera hluti á annan hátt en allir aðrir þegar við erum að tala um svona einfalda mælikvarða. Því ættum við að sjálfsögðu að taka upp samræmda mæliaðferð.
Nú vill svo til að við erum með svolítið fáránlegt kerfi hér á Íslandi. Það kom ágætlega fram í máli hv. þm. Helga Hrafns Gunnarssonar áðan að það eru ekki allir algerlega sammála innan þingflokks Pírata um nákvæmlega hvert eðli fáránleikans er. (HHG: Heyr, heyr.) Sú afstaða sem ég hef er þess eðlis að hún sameinar í raun afstöðuna sem hefur komið fram hjá hv. þm. Ólafi Ísleifssyni og afstöðuna sem hefur komið fram hjá hv. þm. Þorsteini Víglundssyni. Einhverjum kann að þykja þetta furðulegt, en skoðum þetta.
Jafnvel þótt við horfum fram hjá áhrifum verðtryggingar á almenning, á hinn almenna mann sem er með verðtryggt lán — og ég er ekki að segja að við eigum að horfa fram hjá þeim, en skoðum þetta — þá er það samt tilfellið að verðtrygging veldur því að verðbólga eykur peningamagn í umferð. Það er ákveðinn hluti af lánum verðtryggður, það kemur smá verðbólga, það þýðir að höfuðstóll lánsins eykst, nema hvað þetta er ekki bara eitt lán heldur tugir þúsunda lána og hvert þeirra eykur þar með heildarpeningamagnið í umferð lítillega. Afleiðingin er sú að það bætast við peningar á efnahagsreikning bankanna. Þetta skekkir bæði stöðu bankanna gagnvart öllum öðrum en ekki síður allra annarra gagnvart bönkunum. Þetta ýtir beinlínis undir meiri verðbólgu.
Eina ástæðan fyrir því að við erum ekki með bullandi háa verðbólgu er að það er eitthvað í þessu kerfi öllu á Íslandi sem virkar sem niðurfall fyrir alla þessa verðbólgu. Hvort það er framleiðnin eða eitthvað annað, ég veit það hreinlega ekki, ég hef ekki séð almennilega greiningu á því. En ef verðtryggingin yrði afnumin myndi það verða til þess að áhættunni af verðbólguáhrifunum yrði dreift milli bankanna og lántakenda. Það myndi auk þess gera að verkum að lánsfjárkostnaðurinn myndi birtast samstundis í formi greiðsluflæðis hjá lántakendum í stað þess að vera að hluta til settur yfir á höfuðstól lánsins. Þetta myndi auka gagnsæi fyrir lántakandann og auka vitund hans um það hversu mikið kostar að taka lánið. Þetta myndi líklega leiða af sér lægra vaxtastig. Það eru einhver áhöld um það. En ég trúi því engu að síður að vaxtastigið myndi normalíserast vegna þess að það væru meiri líkur á því að samkeppni yrði á eðlilegum forsendum. Fyrir utan að erlendir bankar væru líklegri til að koma inn og bjóða samkeppnishæfa vexti. Þetta myndi minnka þörf á innflæðishöftum.
Þarna ætla ég að taka undir það sem hv. þm. Helgi Hrafn Gunnarsson kom inn á rétt áðan. Það er til nokkuð í hagfræðinni sem heitir þrílemma. Þrílemman segir ótrúlega skýrt að það er hægt að hafa frjálst flæði fjármagns, sjálfstæða peningastefnu eða stöðugt gengi. Það er hægt að hafa eitthvað tvennt af þessu. Það er ekki hægt að hafa allt þetta þrennt. Það er ekki hægt að hafa alla þessa þrjá eiginleika samtímis. Það er bara ekki hægt. En íslenska hagkerfið hefur alltaf verið rekið á þeim forsendum að það sé hægt að viðhalda þessu þrennu með stórkostlega vondum afleiðingum fyrir alla þegar það bregst.
Hvað þurfum við í hagkerfinu á Íslandi? Jú, ég vil meina að við þurfum stöðugleikann sem felst í stöðugu gengi. Það er vegna þess að hagkerfi okkar er frekar lítið í alþjóðlegu samhengi. Viðskipti heimilanna þegar þau kaupa vörur erlendis frá og fyrirtækjanna sem reyna að selja vörur út úr landi til að fá gjaldeyristekjur eru háð því að það sé einhver fyrirsjáanleiki og stöðugleiki. Það er alveg fráleitt að vera alltaf að stefna fyrirtækjum landsins á móti einstaklingunum í landinu og heimilunum í þeim tilgangi að lifa í einhverri sátt með þetta óstöðuga fyrirkomulag. Við þurfum því stöðugleikann í genginu.
Hitt atriðið sem við þurfum að hafa er frjálst flæði fjármagns. Öðruvísi getum við ekki stundað viðskipti við útlönd. Ísland framleiðir t.d. um 6 milljónir fiskmáltíða á dag. Þetta er áhugaverð tölfræði. Miðað er við ákveðna skammtastærð. En við getum augljóslega ekki borðað 6 milljón fiskmáltíðir á dag þannig að við þurfum að flytja þær út. Frjálst flæði fjármagns er grundvallaratriðið til þess að hægt sé að gera það, þó svo að auðvitað sé hægt að bulla sig fram hjá fjármagnshöftum eins og við höfum gert nýlega við ótrúlega takmarkaða gleði af hálfu Eftirlitsstofnunar EFTA.
Það sem við þurfum ekki er sjálfstæð peningastefna. Vissulega er ágætt að hafa möguleika á ákveðnu sjálfstæði í peningastefnunni og það er enginn að leggja til að við hættum að vera með sjálfstæða peningastefnu að öllu leyti. En ég legg til að við hættum því að flestu leyti. Það er vegna þess, eins og hefur komið fram, að krónan er ótrúlega lítill gjaldmiðill. Krónan passar bara ekki inn í hóp gjaldmiðla þeirra ríkja sem við berum okkur almennt saman við. Til þess að finna jafn lítinn gjaldmiðil og krónuna þarf maður að horfa ofan í LETS-kerfið og skoða varagjaldmiðillinn í Sviss eða jafnvel Brixton-pundið. Að vísu held ég að íslenska krónan sé töluvert stærri en Brixton-pundið en engu að síður eru þetta ekki alvörugjaldmiðlar sem ríki eru á bak við.
Við þurfum að nálgast þessa hluti af meiri skynsemi. Það er ótrúlegt hvað það eru margir hlutir í stjórnun Íslands sem ganga út á að fara alveg stórkostlega heimskulegar leiðir við að gera hlutina á allt annan hátt en öll önnur lönd, bara til þess að vera öðruvísi og klappa okkur á bakið fyrir að vera sérstök og öðruvísi. Yfirleitt þegar maður fer að plokka í röksemdarfærslurnar er þessi frábreytileiki frá öðrum löndum í grunninn til þess gerður að búa til aðstæður þar sem sérstöku valdaójafnvægi er viðhaldið í þágu ákveðins hóps fólks og gegn hagsmunum allra annarra Íslendinga en þeirra sem tilheyra þessum hópi. Þetta hljómar kannski eins og samsæriskenning og ég meina þetta ekki þannig en staðreyndin er sú að allar þessar ákvarðanir voru teknar af ágætlega greindu fólki sem vissi alveg hvað það var að gera. Það er einhver sem græðir á þessu. Við vitum það.
Í tilfelli verðtryggingarinnar er augljóst að bankarnir græða töluvert á kostnað almennings. Það er bara skýrt. Í tilfelli krónunnar er það misjafnt hver græðir eftir því hversu óstöðug hún er hverju sinni, en ég get sagt ykkur það að það er aldrei almenningur sem fær stærsta vinninginn upp úr þessu. Jú, stundum fer gengið nægilega mikið upp til þess að flugið til útlanda verður aðeins ódýrara en meira er það í raun ekki. Allt annað brýst út í verðlagi innan lands og veldur okkur óþægindum.
Þetta vil ég meina að sé samsuðan. Við þurfum að fara að mæla hluti á nákvæmlega sama hátt og löndin í kringum okkur til þess að við séum sambærileg við þau og til þess að við séum ekki að gera heimskulega hluti. Það þarf að afnema verðtryggingu af lánum til einstaklinga vegna þess að hún eykur peningamagn í umferð á þann hátt sem eykur verðbólgu, keyrir hana upp, og hefur eingöngu jákvæð áhrif á efnahagsreikninga bankanna. Við þurfum síðan að endurskoða peningastefnu okkar, ekki bara með því að tjóðra niður krónuna eins og margoft hefur verið reynt heldur með því að koma upp skynsamlegra framtíðarfyrirkomulagi sem hentar nútímalegu samfélagi eins og okkar sem er einmitt að reyna að taka þátt í alþjóðlegum hagkerfum og þarf að gera það og reiðir sig alfarið á það.
Þetta er alla vega veikburða tilraun mín til að samþætta hugmyndir hv. þm. Þorsteins Víglundssonar og Ólafs Ísleifssonar. Ég held að í grundvallaratriðum hafi það tekist.