upptaka samræmdrar vísitölu neysluverðs.
Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Smára McCarthy fyrir hans viðleitni til að stunda hér greiningar á ræðum og þar á meðal minni. Ég geri ráð fyrir að það þurfi að kafa ansi djúpt til að samþætta málflutning minn annars vegar og hv. þm. Þorsteins Víglundssonar hins vegar en ég hlakka ákaflega til þess að lesa ræðu þingmannsins þegar hún liggur fyrir í þeim búningi. Ég efa ekki að hún verður enn betri í lestri en hún var þegar maður hafði tækifæri til að hlýða á hana hér rétt áðan.
Ég vil nota þetta tækifæri: Ágætir þingmenn úr Píratasöfnuðinum [Hlátur í þingsal.] hafa vísað hér til þekktrar hagfræðikenningar sem ég hafði tækifæri til að fjalla um í afmælisriti ekki alls fyrir löngu er ég fjallaði um krónuna og fullveldið. Af því að ég heyri að hv. þingmenn eru að leita að íslensku orði yfir þessa kenningu þá vil ég bara í allri auðmýkt leyfa mér að segja frá því að ég kallaði þetta fyrirbæri „þríþraut“ í umræddri grein.
Hv. þingmenn Framsóknarflokksins hafa beitt sér fyrir þingsályktunartillögu um að settur verði á laggirnar starfshópur um að skoða mismunandi útfærslur á verðtryggingunni. Það er ekkert að því að gera það eins og ég hef áður sagt. En ég ítreka að við getum ekki fest hér í því fari að fjalla um fínni blæbrigði í framkvæmd verðtryggingarinnar þegar viðfangsefnið er að koma því fyrirbæri fyrir kattarnef, leyfi ég mér að segja, því að þetta á ekkert erindi. Þetta var sett upp út úr algerri neyð 1979, það eru að verða 40 ár síðan og í allt öðru þjóðfélagi; við allt aðra skipan efnahagsmála, við allt annað fjármálakerfi, allt öðruvísi. Allt hefur breyst og við sitjum hér föst. Það hefur vaxið upp ný kynslóð í landinu sem þekkir ekkert annað en þetta og heldur að þetta sé bara eins og Esjan, sé bara gefin stærð. Það er ekki svo, herra forseti.
Það finnst glögglega að það er á brattann að sækja hér á hinu háa Alþingi í þessu máli. Hér eru tveir flokkar sem hljóta að falla undir þá skilgreiningu að teljast algerlega forhertir í málinu. Annar þeirra er fjarverandi eins og jafnan þegar þessi mál eru á dagskrá. [Hlátur í þingsal.] Hinn hefur lýst með mjög eindregnum hætti sinni afstöðu og þá er ég að tala um Viðreisn að sjálfsögðu.
Hv. þingmenn Framsóknarflokksins, sem eru hér að hreyfa þessu máli, hvernig eigi að reikna út vísitöluna, gera það að gefnu tilefni, það verður að segjast eins og er. Hvert er tilefnið? Tilefnið er það að hér hafa sprottið upp alveg sérstök vandamál í húsnæðismálum landsmanna, alveg sérstök vandamál. Sum af þessum vandamálum eru manngerð vandamál sem eiga rót að rekja til pólitískrar stefnu sem er fylgt í stærsta sveitarfélagi landsins. Það hefur leitt af sér alveg fádæma hækkun á húsnæðis- og leiguverði þar með og það skilar sér inn í þessa vísitölu og hækkar hana jafnvel þótt almennt verðlag á vöru og þjónustu hafi farið hjaðnandi í landinu. Greiðendur af verðtryggðum lánum hafa þurft að taka á sig, herra forseti, tugi milljarða af þessum sökum — tugi milljarða á tugi milljarða ofan.
Þessar fjárhæðir, þessar auknu byrðar sem lagðar hafa verið á heimili og atvinnufyrirtæki landsmanna — við skulum bara tala um heimilin; þetta jafngildir því að þau eigi að standa undir verðmæti þorskafla á Íslandsmiðum. Nýjar kröfur sem með þessum hætti hafa stofnast á heimilin; sinnuleysið, skeytingarleysið af hálfu þessara flokka sem sinna þessu ekki neitt er algjört og forkastanlegt, leyfi ég mér að segja.
Háttvirtir Framsóknarmenn eru hér í ríkisstjórn með tveimur flokkum sem hafa alltaf uppi hið fornkveðna þegar þessi mál koma á dagskrá, segja alltaf: Við stefnum að því að draga úr vægi verðtryggingar. Þetta er dulmál, herra forseti, og merkir á íslensku: Við viljum verðtrygginguna áfram og munum ekki hræra legg eða lið til að koma henni burt.
Metnaðarleysið hjá ríkisstjórninni birtist í því að í stefnuyfirlýsingu sinni, standandi frammi fyrir þeirri staðreynd, herra forseti, að húsnæðisliðurinn hefur lagt þessar byrðar á heimili landsmanna, segir hún eitthvað á þessa leið: Að hún muni á kjörtímabilinu, það eru víst fjögur ár, það gæti orðið haustið 2021 þess vegna, hefja skoðun á því — hefja skoðun — hvernig megi fjarlægja fasteignaverð úr mælingum neysluvísitölunnar. Hefja skoðun, herra forseti. Þetta er metnaður ríkisstjórnarinnar. Þetta er ríkisstjórn sem hv. Framsóknarflokkur á aðild að, sem hefur margoft gefið það til kynna að hann vilji vel í málinu. Ég dreg ekki í efa einlægni og heiðarleika þeirra í því en hann er í ríkisstjórn með verðtryggingarflokkum. Eins gott að allir gangi að því opnum augum.
Það er hins vegar ástæða til að nefna að eftir mjög miklar hækkanir á húsnæðisverði samhliða lækkun á almennu verðlagi veit auðvitað enginn hver verður framvindan í því. Þess vegna er út af fyrir sig ekkert athugavert við að sest sé yfir það og málið tekið út og þess vegna er ég meðmæltur þessari þingsályktunartillögu.
Það er ekkert lánaform, leyfi ég mér að segja, útbreiddara á íslenskum, fjármálamarkaði, a.m.k. eins og það snýr að heimilunum, en verðtryggingin. Samt er eftirlit með þessum þætti ekki beysið.
Ég ætla að leyfa mér að nota þann tíma sem eftir er til þess að vekja athygli á fyrirspurn sem ég hef lagt fram til fjármála- og efnahagsráðherra um eftirlit Fjármálaeftirlitsins með verðtryggðum lánum til að gefa ráðherranum og Fjármálaeftirlitinu kost á því að gera grein fyrir því, þingi og þjóð, með hvaða hætti eftirliti með þessum lánaflokki er háttað. Til að mynda: Hversu oft hefur Fjármálaeftirlitið óskað eftir upplýsingum frá eftirlitsskyldum aðilum um útreikninga vaxta og verðtryggingar lánsfjár og gert sérstakar athuganir, þar á meðal vettvangsathuganir, ef tilefni þykir til? Hversu oft hefur Fjármálaeftirlitið talið sig þurfa að sinna leiðbeiningarskyldu og fylgja eftir ábendingum sem stofnuninni berast og varða verðtryggingu lánsfjár? Hversu oft hefur Fjármálaeftirlitið fylgt því eftir að brugðist sé með viðeigandi hætti við dómum sem lúta að ágreiningi um vexti og verðtryggingu þar sem eftirlitsskyldir aðilar eiga í hlut? Um hvaða dóma ræðir og hvernig gerir Fjármálaeftirlitið opinberlega grein fyrir mati sínu á áhrifum og fordæmisgildi umræddra dóma?
Þá er sömuleiðis ástæða til að spyrja: Hvert geta einstaklingar beint kvörtunum sem ekki telja rétt staðið að útreikningi á vöxtum og verðtryggingu? Geta þeir beint kvörtunum þar að lútandi til Fjármálaeftirlitsins og fengið leyst úr þeim með formlegri málsmeðferð? Eða telur ráðherra fullnægjandi úrræði vera fyrir hendi fyrir einstaklinga og lögaðila til að leita slíkrar úrlausnar?
Herra forseti. Það er allt á sömu bókina lært í þessu efni. Það er lagt á þjóðina að hér eigi (Forseti hringir.) allt að vera verðtryggt sem iðar og lífsanda dregur, en ekki eru til neinar opinberar formúlur fyrir því hvernig eigi að reikna þetta út og eftirlitið er ekki upp á marga fiska.