endurskoðun XXV. kafla almennra hegningarlaga.
Hæstv. forseti. Ég á sæti í allsherjar- og menntamálanefnd og átti þátt í því nefndaráliti og þeim tillöguflutningi sem hv. þm. Andrés Ingi Jónsson gerði grein fyrir hér áðan. Við umfjöllun í nefndinni komu fram sjónarmið flestra gesta og raunar nefndarmanna einnig um að tilefni væri til að fara í endurskoðun á þeim kafla hegningarlaganna sem fjallar um ærumeiðingar og vernd friðhelgi einkalífsins. Það kom fram að dómaframkvæmd hér á landi hafi á köflum verið umdeild og í sumum tilvikum stangast á við niðurstöður mannréttindasáttmála Evrópu. Það kom reyndar líka fram að vísbendingar væru um að dómaframkvæmd væri að breytast hér á landi. Þess má reyndar líka geta að í ummælum gesta sem til þekkja komu fram sjónarmið um að ástæða væri til að átta sig á að dómaframkvæmd hjá Mannréttindadómstólnum hefði einnig að einhverju leyti breyst í þessum efnum. Allt er þetta efni sem þarf að taka til skoðunar áður en farið er í lagabreytingar hér á landi á þessu sviði.
Það var þannig samstaða um að ástæða væri til þeirrar skoðunar sem er meginefni þessarar tillögu og eftir atvikum þeirra lagabreytinga sem af slíkri skoðun leiddu. Þegar farið var að fjalla um þetta á vettvangi nefndarinnar kom fram, eins og kemur fram í nefndarálitinu, að þetta verkefni hefur snertifleti við vinnu sem áður hefur verið unnin — þá reyndar undir forystu menntamálaráðuneytis á grundvelli þingsályktunartillögu um að Ísland verði í fremstu röð á sviði tjáningar-, fjölmiðla- og upplýsingafrelsis. Rétt er, sem fram hefur komið í umræðu, að niðurstöður þeirrar nefndar eða verkefnisstjórnar sem vann það verk hafa ekki komið í frumvarpsformi hér inn í þingið en eru til sem gögn sem hægt er að líta til við vinnu að þessu leyti. En jafnframt, eins og hv. framsögumaður nefndarálitsins, Andrés Ingi Jónsson, gat um hér áðan, var á vettvangi ríkisstjórnarinnar ákveðið fyrr á þessu ári að setja af stað sérstaka vinnu til að fara yfir lagasviðið heildstætt að þessu leyti, sem varðar tjáningarfrelsi, upplýsingafrelsi og fjölmiðlafrelsi. Að sjálfsögðu fellur endurskoðun á meiðyrðakafla hegningarlaganna vel að því verki og hefði í raun verið einkennilegt ef gert hefði verið ráð fyrir að sérstök vinna færi í gang um þetta óháð þeirri vinnu sem þegar er komin af stað.
Það, eins og framsögumaður nefndarálitsins lýsti, leiddi til þess að nefndin komst að þeirri sameiginlegu niðurstöðu að eðlilegt væri að vísa þessu máli til ríkisstjórnarinnar með það að markmiði að tillagan eins og hún er sett fram verði meðal þeirra útgangspunkta sem verkefnisstjórn eða nefnd forsætisráðuneytisins, undir formennsku Eiríks Jónssonar, hafi til hliðsjónar við sína vinnu.
Ég held að það hafi í sjálfu sér verið farsæl lausn. Það er ekki, held ég, mikill ágreiningur um að ástæða sé til endurskoðunar á ákvæðunum sem hér um ræðir. Hins vegar erum við kannski ekki endilega komin á þann stað að geta sagt til um hvernig útfærslan verður nákvæmlega. Menn hafa velt fyrir sér sjónarmiðum um hvort kafli af þessu tagi eigi heima í hegningarlögunum eða hvort vísa eigi þessu alfarið á vettvang einkamálaréttarins. Í dag eru þetta að forminu til svokölluð einkarefsimál. Það getur skipt máli hvernig ákvæðum af þessu tagi er skipað í lagasafnið, bæði varðandi túlkun, sönnun og aðra slíka þætti. Það er mikilvægt að þetta sé skoðað, ekki eingöngu út frá meginefninu heldur líka slíkum lagatæknilegum sjónarmiðum þannig að ákvæði af þessu tagi nái tilgangi sínum, þ.e. að áfram verði fyrir hendi í íslenskri löggjöf ákvæði sem gera að verkum að telji menn á sér brotið, vegna ærumeiðinga eða vegna brots sem varðar friðhelgi einkalífsins, geti menn leitað réttar síns með einum eða öðrum hætti. Það er mikilvægt. En um leið að gætt sé þess meðalhófs, bæði við útfærslu lagaákvæða og síðan í framkvæmd, hvað slík ákvæði varðar, að ekki sé gengið gegn grundvallarreglum um tjáningar- og málfrelsi í landinu.
Ég held að dómaframkvæmd liðinna ára gefi okkur auðvitað tilefni til slíkrar endurskoðunar. Það er líka ástæða til að skoða ákvæði af þessu tagi í ljósi breyttra tjáningarforma og tjáningarmiðla sem auðvitað er sá veruleiki sem við okkur blasir í dag, töluvert ólíkur þeim veruleika sem var fyrir hendi bara fyrir 10–20 árum, svo að ekki sé talað um lengri tíma. Það er auðvitað mikilvægt að löggjöfin endurspegli þennan veruleika þannig að þess sé gætt að þegar raunverulega er brotið á fólki með ærumeiðingum eða farið gegn friðhelgi einkalífs þess séu fyrir hendi réttarfarsleg úrræði fyrir fólk að leita réttar síns. En að sama skapi, eins og ég tók fram hér áðan, að slík löggjöf, slík ákvæði og framkvæmd þeirra, gangi ekki lengra en nauðsynlegt er svo að tjáningarfrelsið sem meginregla haldi sínu gildi.