kosningar til sveitarstjórna.
Frú forseti. Í því máli sem við ræðum hér kynnti ég mér rök með og á móti því að færa kosningaaldur til sveitarstjórna niður í 16 ár. Ég ætla að byrja á því að fjalla aðeins um rökin á móti.
Færa má rök fyrir því að í þjóðfélaginu ríki æskudýrkun. Þetta birtist einkum og sér í lagi þegar fólk sækir um atvinnu. Þannig er það algengt að ef velja á milli tveggja hæfra umsækjenda um starf þar sem annar umsækjandinn er fimmtugur en hinn þrítugur eru 99% líkur á því að sá þrítugi verði fyrir valinu. Ekki er horft til reynslu þess sem er 20 árum eldri. Það er óumdeilt að sá sem er fimmtugur hefur meiri reynslu á hinum ýmsu sviðum lífsins en sá sem er þrítugur. Í þessari umræðu eru það rök á móti að sá sem er yngri en 18 ára hafi ekki djúpa lífsreynslu eða dómgreind. Almennt held ég að óhætt sé að segja að 16 ára ungmenni hafi lítinn áhuga á stjórnmálum eða sveitarstjórnarmálum. Það á þó ekki við um alla. Þetta kom meðal annars fram í viðræðum mínum við nokkur ungmenni á þessum aldri. Margir eru á þeirri skoðun að áhugasvið þessa aldurshóps snúist fyrst og fremst um eigin persónulegu hagi, að vera vinsæll og viðurkenndur meðal sinna félaga, ná árangri og vera jafnvel miðpunkturinn í félagslífinu.
Mikill meiri hluti þessa aldurshóps býr í foreldrahúsum, er í námi og á framfæri foreldra sinna þótt einhverjir vinni fyrir sér. Sú hætta er fyrir hendi að þau verði auðveldlega fyrir áhrifum af foreldrum sínum um hvaða flokk beri að kjósa. Kosningarrétturinn er lýðræðisleg ábyrgð, hann er ekki gluggaskraut og ekki leikfang. Það má ekki gleyma því að kosningarrétturinn er einnig forréttindi vegna þess að það hefur kostað blóð, svita og tár hjá mörgum hópum að fá kosningarrétt.
Maður þarf að vinna fyrir honum og bera virðingu fyrir honum. Við getum ekki tekið honum sem sjálfsögðum hlut og það má ekki misnota hann. Margir óábyrgir einstaklingar hafa misnotað þennan mikilvæga rétt. Það þarf fræðslu um það í hverju það felst að fá að kjósa eins og t.d. í sveitarstjórnarkosningum, fræðslu um sveitarstjórnarstigið, verkefni sveitarfélaganna og ábyrgð.
Þegar sótt er um ríkisborgararétt þarf viðkomandi að hafa búið hér á landi í a.m.k. sjö ár. Við gerum einnig þá kröfu að viðkomandi standist íslenskupróf og hafi einhverja þekkingu á sögu lands og þjóðar. Verðum við ekki að gera sömu kröfur þegar kemur að því að fá mikilvæg réttindi eins og kosningarrétt? Er hugsanlegt að lækkun kosningaaldurs gagnist sumum stjórnmálaflokkum betur en öðrum og að það geti haft áhrif á afstöðu einstakra flokka eða þingmanna í þessari umræðu, að ekki sé verið að hugsa um ungmennin heldur búi einhver ótti hér að baki?
Það eru að sjálfsögðu rök í málinu að sá sem er ekki lögráða og hefur ekki kjörgengi eigi ekki að hafa rétt til að kjósa. Verður Alþingi þá ekki að breyta lögræðisaldrinum til samræmis ef lækka á kosningaaldur? Eða á Alþingi yfir höfuð að ákveða þetta mál? Er þetta kannski eitthvað sem á heima í þjóðaratkvæðagreiðslu?
16 og 17 ára ungmenni eru ungmenni. Það styttist hins vegar hratt í að þau þurfi að axla ábyrgð sem góðir og gegnir þjóðfélagsþegnar. Eigum við ekki bara að leyfa þeim að njóta þess að vera ungmenni þar til 18 ára aldri er náð?
Skoðum þá næst rökin með því að færa kosningaaldurinn niður í 16 ár. Ungmenni sem eru 16 eða 17 ára hafa nægan þroska til að kjósa til sveitarstjórna. Sýnt hefur verið fram á þetta með rannsóknum, m.a. sem gerðar hafa verið við háskólann í Minnesota í Bandaríkjunum. Þessi aldurshópur er fullfær um að taka upplýstar ákvarðanir, það kemur fram í þessari rannsókn sem er athyglisverð. Einnig hefur verið sýnt fram á að þekking þessa sama aldurshóps á þjóðfélagsmálum sé ekki lakari en t.d. þeirra sem eru 18 ára. Það sjónarmið hefur komið fram, m.a. í Bandaríkjunum, að það auki mikilvægan áhuga á lýðræði almennt að færa kosningaaldurinn niður í 16 ár. Það eru einnig haldbær rök að segja að kosningarréttur 16 ára sé um það að þeir skipti máli, ekki hversu áhugasamur viðkomandi er um að kjósa. 16 og 17 ára taka oft þátt í stjórnmálum, hjálpa til við að dreifa kosningabæklingum o.s.frv. 17 ára einstaklingur getur t.d. ekið öðrum einstaklingi sem er 18 ára á kjörstað í kosningunum 26. maí nk. Hinn 18 ára farþegi má kjósa en bílstjórinn sem er 17 ára má það ekki.
Stundum horfum við á okkur sjálf sem aðskilin frá heimi ungmenna og að það sé svo svakalega langt síðan við vorum 16 ára. Við séum miklu þroskaðri en 16 og 17 ára ungmenni. Sá sem er 16 ára og ákveður að fara út á vinnumarkaðinn greiðir skatta og útsvar. Eru það ekki rök í umræðunni að sá hinn sami eigi að fá að hafa eitthvað um það að segja hvernig útsvari hans er varið, hafa eitthvað um það að segja hverjir eru valdir til að stjórna í sveitarfélaginu þar sem hann býr? Sveitarfélagið hefur heimild til að halda í launaseðilinn hjá viðkomandi en sá hinn sami fær ekki að halda á kjörseðli sveitarfélagsins.
Þegar Víetnam-stríðið stóð sem hæst voru uppi háværar kröfur um það í Bandaríkjunum að ef hægt væri að senda 18 ára ungmenni í stríð, jafnvel gegn þeirra vilja, ættu þau að fá eitthvað um það að segja hverjir stjórnuðu landinu og tækju ákvarðanir um að senda þetta sama unga fólk í stríð. Á þessa kröfu var á endanum hlustað. Bandaríkjamenn breyttu stjórnarskrá sinni og færðu kosningaaldurinn niður í 18 ár.
Sömu sjónarmið lágu að baki kröfu blökkumanna í Bandaríkjunum um kosningarrétt. Í Suður-Dakota í Bandaríkjunum getur 14 ára og þriggja mánaða ungmenni ekið bifreið. Þau mega aka á kjörstað en þau mega ekki kjósa. Eru 16 og 17 ára ungmenni eitthvað verri kjósendur en þeir sem eldri eru? Ég spyr.
Við urðum vitni að nafnlausum svívirðingum á netinu í garð sumra stjórnmálamanna fyrir síðustu alþingiskosningar. Bak við þann ósóma voru einstaklingar með kosningarrétt. Þeir þykja væntanlega nægilega þroskaðir til að kjósa þó svo að hátterni þeirra hafi borið skýrt vitni um annað.
Oft er rætt um þroska í þessari umræðu, að ungmenni 16 og 17 ára séu ekki nægilega þroskuð. Þegar ég var 16 ára byrjaði ég í menntaskóla og fannst mér ég vera fullþroskaður. Auðvitað var ég það ekki en ég vissi þó ýmislegt um stjórnmál. Ég var til dæmis með mynd af Lenín í herberginu mínu. Það var að vísu eftir á að hyggja ekki þroskamerki enda maðurinn valdagráðugur einræðisherra og fjöldamorðingi. Ég get fullvissað ykkur um að það eru margir með kosningarrétt í dag sem hafa ekki sýnt að þeir hafi þroska til að vera með hann, eins og ég hef áður nefnt.
Víkjum þá aðeins að þeim rökum aftur að það sé ótækt að ungmenni fái að kjósa vegna þess að þau kjósi bara það sama og foreldrarnir. Tökum dæmi: Segjum að einstaklingur sem er til dæmis rétt undir aldrinum 60 ára hafi kosið eins og foreldrar hans þegar hann var ungur og kýs enn þá samkvæmt því og sama flokkinn. Ég held að það sé ekki hægt að banna honum að kjósa á þeim forsendum. Það væri náttúrlega óskandi að hann kysi nú rétt, svona einu sinni, en það er önnur saga. Að öllu gamni slepptu held ég að þessi rök um áhrif foreldra haldi ekki. Er það ekki einmitt þannig að ungmenni keppast við að vera svolítið á öndverðum meiði við foreldra sína? Kosturinn við það að þessi hópur, 16 og 17 ára, fái að kjósa er sá að þá fara stjórnmálaflokkar og þeir sem bjóða fram til sveitarstjórna kannski að hugsa meira um málefni sem varða þennan aldurshóp.
Aldur og lífsreynsla gerir okkur öll þroskaðri. Við verðum til dæmis betri foreldrar með aldrinum og betri starfsmenn. En ég held að við verðum ekkert betri kjósendur með aldrinum. Það er ekkert nýtt að rökin gegn því að fá að kjósa séu að viðkomandi hafi ekki þroska til þess. Var það ekki þannig hér á landi að konur þurftu að berjast fyrir kosningarrétti sínum, var ekki sagt að þær hefðu ekki þroska til þess? Þurftu þær ekki fyrst að vera 40 ára að aldri til að fá að kjósa? Sagði ekki fyrsta þingkonan okkar, Ingibjörg H. Bjarnason, að karlarnir hefðu ekki hlustað á hana til að byrja með? Sjálfsagt vegna þess að hún var ekki nógu þroskuð — fertug konan.
Forræðishyggjan í þessu máli er gamaldags hugsunarháttur að mínu áliti. Ég er hlynntur því að kosningaaldur verði lækkaður. Ég styð hins vegar breytingartillögu okkar Miðflokksmanna um að málinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar og fái vandaða og góða umfjöllun sem ég tel rétt undir þessum kringumstæðum.
Ég fagna þessari umræðu og þeim athyglisverðu sjónarmiðum sem hér hafa komið fram.