kosningar til sveitarstjórna.
Virðulegi forseti. Hér ræðum við frumvarp til laga um breytingu á lögum um kosningar til sveitarstjórna. Ég kem hér til þess að lýsa yfir stuðningi við breytingartillögu frá Kolbeini Óttarssyni Proppé sem hljóðar þannig: „Lög þessi öðlast gildi 1. júní 2018.“
Er það í raun í góðu samræmi við þá breytingartillögu sem ég hafði lagt fram fyrr ásamt nefndaráliti.
Mig langar að koma inn á það að í mínum huga snýst þetta mál fyrst og fremst um kosningarrétt en ekki önnur réttindi. Eins og fram hefur komið ítrekað í umræðunni er það í góðu samræmi við barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og málflutning ýmissa þeirra gesta sem komu fyrir nefndina að eðlilegt sé að ungmenni öðlist réttindi stig af stigi, fái tækifæri til að axla ábyrgð jafnt og þétt eftir því sem þau þroskast. Á það var jafnframt bent af umsagnaraðilum og gestum fyrir nefndinni að það að öðlast kosningarrétt felur í sér tækifæri og réttindi til þess að nýta kosningarrétt en ekki á sama hátt skyldu til þess að mæta á kjörstað, enda er það í samræmi við það að ungmenni hafa mismunandi áhugasvið og þroskast mishratt. Sum hafa miklar pólitískar skoðanir, á meðan önnur hafa minni áhuga á stjórnmálum á þessum aldri, hvort sem við hugsum um aldurinn 16–18 ára eða 16–30 ára.
Ég vil líka leggja áherslu á það að við í þessum ræðustóli tölum um tækifæri og í rauninni það traust sem við getum sýnt ungmennum á mismunandi aldri af því að ég þekki það, það er hægt að treysta ungmennum, eftir því sem þroska þeirra vindur fram. Ég legg áherslu á að við nálgumst þetta mál frá því sjónarmiði.